Engin sumarslátrun á Blönduósi
Sauðfjárslátrun Sigurður Jónsson
Engin sumarslátrun verður hjá SAH afurðum á Blönduósi þetta árið þar sem spurn eftir sumarslátrun hefur nánast horfið. Sauðfjárslátrun hefst því hjá SAH afurðum 1. september.
Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri SAH afurða segir á vefsíðu félagsins að um langt árabil hafi SAH Afurðir verið leiðandi í því að lengja það tímabil sem sauðfjárslátrun tekur yfir.
„Á ákveðnum tíma gekk þetta vel og var til að mynda slátrað ríflega 10.000 fjár í ágúst fyrir fáum árum síðan. Allt frá þeim tíma hefur slátrun í ágúst dregist saman og var slátrað ríflega 350 fjár í ágúst á síðastliðnu ári. Þrátt fyrir að umtalsverðar yfirborganir hafi verið í boði,“ segir Sigurður Jóhannesson.
Í ljósi þessarar þróunar hefur verið ákveðið að sauðfjárslátrun hefjist hjá SAH afurðum 1. september. SAH afurðir greiða 40 krónur í uppbót fyrir kílóið og að auki greiðir Markaðsráð 300 krónur fyrir hvern dilk sláturvikuna 31.ágúst til 4. september. Yfirborgun SAH afurða vikuna 7. til 11. september verður 35 krónur fyrir kílóið.
Sigurður Jóhannesson segir að því miður séu ekki forsendur til hærri yfirborgana vegna almennt erfiðra efnahagsaðstæðna í þjóðfélaginu og ekki síður vegna markaðsaðstæðna.
Hjá SAH afurðum er slátrað sauðfé af svæði sem nær frá Kelduhverfi í austri til Dýrafjarðar í vestri, ásamt fé úr Borgarfirði, Dölum og Þingvallasveit. Nautgripum og hrossum er slátrað eftir því sem framboð gefur tilefni til. Samhliða rekstri sláturhúss er rekin kjötvinnsla sem stofnuð var 1963, þar sem megináherslan er lögð á grófvinnslu fyrir aðrar kjötvinnslur.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Barist um afurðaverð
- Laugardagur, 21. ágúst 2010, Innlent Sauðfjárslátrun haustsins að hefjast
- Miðvikudagur, 2. september 2009, Innlent Íslenskur hundamatur brátt á markað
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Hærra verð fyrir lífrænt
- Mánudagur, 14. september 2009, Innlent Fimmfaldur munur á álagsgreiðslum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































