Aðrar reglur um almenn gjafabréf en verðlaunabréf
Þetta segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, vegna ásakana í bréfi til Morgunblaðsins, sem birtist í gær, um að Icelandair steli eftirstöðvum af gjafabréfum.
„Almenn gjafabréf eru föst upphæð og þau er hægt að nota eins og manni sýnist. Það er hægt að nota til dæmis 10 þúsund krónur af slíku bréfi og geyma afganginn. Þau eru bara peningaleg inneign. Með verðlaunagjafabréfum erum við að leggja fram vöru, sem er bara flugsæti fram og til baka, en ekki fjármuni,“ segir Guðjón.
Þegar aðgangsorð á verðlaunagjafabréfi er slegið inn á síðu Icelandair kemur upp ákveðin upphæð, að sögn Guðjóns.
„Hún er höfð nógu há til þess að viðkomandi geti fengið flug á almennu farrými nánast hvaða dag sem er. Þótt verð á flugi á þeim degi sem valinn er sé lægra en upphæðin sem kom upp þegar aðgangsorðið var slegið inn þýðir það ekki að viðkomandi eigi mismuninn.“
Flugvallarskattar og aðrar greiðslur eru ekki innifaldar í verðlaunagjafabréfinu og kemur það fram í skilmálum á sjálfu bréfinu, að því er Guðjón greinir frá.
Handhafi gjafabréfsins getur ekki notað verðmismuninn til þess að greiða þessi gjöld þar sem hann á ekki mismuninn.
Hægt er þó að nýta alla upphæðina sem gefin er upp til þess að uppfæra sig í sæti en þá þarf að bæta við því sem upp á vantar. Það er þó ekki hægt að gera eftir að kaupin eru frágengin og farseðillinn gefinn út, að sögn Guðjóns.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Icelandair gerir breytingar á fargjaldaflokkum
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
- Miðvikudagur, 27. ágúst 2008, Innlent Átta sagt upp til viðbótar
- Föstudagur, 19. febrúar 2010, Innlent Ráðherra hefur áhyggjur af fyrirhuguðu verkfalli
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Vona að til verkfalls komi ekki
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































