Bankarnir fara í hart við Exista

stækka

mbl.is

Morgunblaðið Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Skilanefnd Glitnis hefur höfðað mál á hendur Exista vegna vangoldinna krafna. Á sama tíma hefur Landsbankinn neitað að funda með eigendum félagsins, þeim Ágústi og Lýð Guðmundssyni vegna vangoldinna krafna, en höfuðstóll krafna Landsbankans á hendur félaginu er rúmlega 23 milljarðar króna.

Skilanefnd Landsbankans er í ólíkri stöðu og Kaupþing og Glitnir, því Exista á ekki gagnkröfur á bankann í formi gjaldmiðlaskiptasamnings. Uppgjör gjaldmiðlaskiptasamninga er mikið hagsmunamál fyrir núverandi eigendur Exista, en félagið telur sig eiga samtals 1,3 milljarða evra (233 milljarða króna) kröfur á hendur Kaupþingi og Glitni vegna samninganna. Við uppgjör þeirra vill félagið byggja á skráðu gengi Evrópska seðlabankans, en ekki gengisskráningu Seðlabanka Íslands.

Vilja skera niður kostnað

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vilja skilanefndirnar gera breytingar á Exista og skera niður rekstrarkostnað, þ.ám. launakostnað, sem þykir heldur hár hjá félaginu. Einnig telja þær að endurskipulagningartillögur núverandi eigenda félagsins séu ekki raunhæfar.

Samkvæmt gögnum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, hafa stjórnendur Exista lagt til að kröfuhafar félagsins taki veð í öllum eignum þess „að því marki sem mögulegt er“ og hafin verði arðgreiðsla úr dótturfélögum til móðurfélagsins, þ.e. Exista, til hagsbóta fyrir kröfuhafa. Ráðinn verði sérstakur ráðgjafi „Chief Restructuring Officer,“ sem hafi með höndum umsjón með fjárhagslegri endurskipulagningu.

Dótturfélög Exista eru Skipti, móðurfélag Símans, tryggingafélögin VÍS og Lífís og eignaleigufyrirtækið Lýsing. Það er því ljóst að mikil undirliggjandi verðmæti eru í félaginu, þrátt fyrir gríðarlega skuldsetningu.

Í hnotskurn
» Nýja Kaupþing og gömlu bankarnir eru helstu innlendu kröfuhafar Exista, en þeir vilja taka félagið yfir og víkja stjórnendum þess frá.
» Erlendir kröfuhafar Exista eru 37 alþjóðlegir bankar, þ.ám. RBS, Deutsche Bank og Barclays.
» Sumir þeirra vilja ekki fara þessa leið þar sem þeir telja að hagsmunum sínum sé betur borgið með gömlu stjórnendurna við stjórnvölinn.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
DÖMUSKÓR
Teg: 7315 Sérlega mjúki og þægi- legir dömuskór...
Til sölu stór og vel staðsett eignarlóð
Mjög stór og vel staðsett eignarlóð samtals 3,62ha. Lóð númer H-37 í Heklubyggð...
Upphengi fyrir reiðhjól
Upphengi fyrir 10 reiðhjól á 3 mtra rennibraut. verð kr.37000 Upplýsingar í sím...
 
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...