Fundur í fjárlaganefnd klukkan 15

Fjárlaganefnd á fundi.
Fjárlaganefnd á fundi. mbl.is/Ómar

Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd Alþingis klukkan 15 í dag þar sem stendur til að afgreiða frumvarp  um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna.

Fjárlaganefnd Alþingis fól í morgun fimm manna lögfræðinganefnd að vinna texta sem mið tekur af fyrirhuguðum breytingum á frumvarpinu. Nefndarmenn í fjárlaganefnd hafa lagt áherslu á að skerpa á efnahags- og lögfræðilegum fyrirvörum málsins. Vonir standa til þess, að fjárlaganefnd muni öll standa að afgreiðslunni.

Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna hafa lagt áherslu á að réttarstaða landsins verði skýrari, þ.e. að dómstólar geti fjallað um hugsanleg deiluefni er tengjast Icesave-samningnum við Breta og Hollendinga, og einnig að tryggt sé með fyrirvörum að samningurinn verði þjóðinni ekki of þungbær í efnahagslegu tilliti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert