Hákarlstennur frá 12. öld
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Hákarlstennur frá 12. öld fundust við fornleifagröft á Kolkuósi í Skagafirði nýverið. Þær eru að sögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings enn ein vísbendingin um fjölbreytt athafnalíf í þessari meginhöfn Skagfirðinga til forna og miðstöð milliríkjaverslunar.
Þetta er sjöunda sumarið sem uppgröftur fer fram á Kolkuósi í tengslum við Hólarannsóknina á Hólum í Hjaltadal. Uppgraftarsvæðið við ósinn hafði mjög látið á sjá þegar fornleifafræðingar tóku aftur til við rannsóknir sínar í vor. Jarðvegurinn á klöppinni, sem Ragnheiður segir geyma margar forvitnilegar vísbendingar um fornan verslunarstað, er þunnur og viðkvæmur fyrir ágangi sjávar en stór hluti hans sópaðist út á sjó í óveðrum síðasta vetur og vor.
„Þrátt fyrir mikið kapphlaup fornleifafræðinga við miskunnarlaus náttúruöfl hafa rannsóknirnar skilað mjög forvitnilegum niðurstöðum og bætt miklu við þekkingu manna á verslun og viðskiptum til forna og aukið skilning á þróun byggðar í Skagafirði,“ segir Ragnheiður, sem telur að höfnin í Kolkuósi hafi án efa ráðið úrslitum um að biskupsstólnum norðanlands var valinn staður á Hólum í Hjaltadal árið 1106. Hún hafi verið helsta höfnin á svæðinu frá landnámi til 16. aldar, en þá hafi kostir hennar spillst og veraldleg völd Hólabiskupa mögulega rýrnað af þeim völdum upp frá því.
Ragnheiður segir það ekki fara á milli mála að fjörugt hafi verið við uppskipun og verslun á Kolkuósi. Þarna hafa fundist merki um járnvinnslu, framleiðslu á kolum, útskurð og smíðar, veiðar á fugli og fiski og nú síðast hákörlum. Einnig ummerki um innflutning á alls konar vörum, bæði nauðsynjavöru og munaðarvöru, tinnu, brýnum, bökunarplötum frá Noregi, leirkerum, hnífum og nöglum og öðrum verkfærum.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. ágúst 2010, Innlent Þaulskipulagt svæði við Kolkuós
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Óvenjulega vel varðveitt 10. aldar fjós
- Fimmtudagur, 24. júlí 2008, Innlent Hús Guðbrands biskups fundið
- Mánudagur, 19. júlí 2010, Innlent Miðaldadagar haldnir á Gásum við Eyjafjörð
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Manns leitað í Skagafirði
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































