Ók á verslun

Bifreið var ekið inn í verslunina Hamraborg á Ísafirði í …
Bifreið var ekið inn í verslunina Hamraborg á Ísafirði í dag Bæjarins besta

Ökumaður jeppabifreiðar ók nánast inn í verslunina Hamraborg á Ísafirði á þriðja tímanum í dag. Bílnum hafði verið lagt í bílastæði fyrir utan verslunina og að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum varð ökumanninum á þau mistök að stíga á bensíngjöfina í stað bremsunnar með þessum afleiðingum.

Töluvert tjón varð á versluninni þar sem tvær rúður brotnuðu og einn gluggakarmurinn bognaði.

Bæjarins besta 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert