Endurfjármögnun bankanna tryggð

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Vilhjálmur …
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson formaður stjórnar Íslandsbanka í dag.

Fjármögnun Íslandsbanka og Nýja Kaupþings af hálfu ríkistjórnar Íslands hefur verið tryggð samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Verður eigið fé Íslandsbanka 65 milljarðar króna og Nýja Kaupþings 72 milljarðar króna, sem lagt er fram í formi ríkisskuldabréfa og tryggir báðum bönkum 12% eiginfjárhlutfall.

Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, um áfangann:
„Með ákvörðun hluthafafunda Íslandsbanka og Nýja Kaupþings um fjármögnun bankanna tveggja hefur verið stigið mikilvægt skref til endurreisnar íslenska bankakefisins. Hvað varðar samningviðræður vegna Landsbankans þá er gert ráð fyrir að þeim ljúki fljótlega.“

Var fjármögnun Íslandsbanka og Nýja Kaupþings samþykkt á hluthafafundum í dag og er hún sögð vera í samræmi við þær fyrirætlanir sem greint var frá 20. júlí s.l. og uppgjörssamninga ríkisstjórnarinnar við skilanefndir Glitnis og Kaupþings sem nú er er lögð lokahönd á.

Varðandi Nýja Landsbankann þá hafi ríkisstjórnin og skilanefnd Landsbankans farið þess á leit við Fjármálaeftirlitið að fá lengri tíma til þess að ná endanlegri niðurstöðu um endurfjármögnun og greiðslur fyrir eignir sem færðar voru úr gamla Landsbankanum yfir í þann nýja. Formlegar viðræður þess efnis hafi gengið vel.

Björk Þórarinsdóttir, staðgengill bankastjóra Nýja Kaupþings, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra …
Björk Þórarinsdóttir, staðgengill bankastjóra Nýja Kaupþings, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Hulda Dóra Styrmisdóttir formaður stjórnar Nýja Kaupþings.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert