Þingmenn okkar hafa brugðist

Herbert Sveinbjörnsson. stækka

Herbert Sveinbjörnsson.

„Ég get ekki tekið þátt í svona og er búinn að afskrifa Borgarahreyfinguna hvað mig varðar. Ég vona þó innst inni að þetta gangi upp því ég hef trú á því sem stefnan segir en þingmenn okkar hafa brugðist,“ segir Herbert Sveinbjörnsson, formaður Borgarahreyfingarinnar. Hann sagði sig úr flokknum í gær. Þá hafa þeir Valgeir Skagfjörð varaþingmaður og Sigurður H. Sigurðsson sagt sig úr stjórn hreyfingarinnar.

Borgarahreyfingin hefur logað stafna á milli svo ekki sé meira sagt. Deilur hafa verið innan þinghópsins og samstarfsörðugleikar milli kjörinna þingmanna og stjórnar. Þá þykir almennum félagsmönnum sem kjörnir fulltrúar hafi svikið stefnu hreyfingarinnar og fjarlægst grasrótina á undraskömmum tíma. Kornið sem fyllti mælinn er tölvupóstur sem Margrét Tryggvadóttir, einn fjögurra þingmanna Borgarahreyfingarinnar sendi í gær. Pósturinn fór einhverra hluta vegna á alla stjórnarmenn. Þar talar Margrét um að Þráinn Bertelsson þingmaður sé þunglyndur og kunni að vera með alzheimer á byrjunarstigi.

„Draumurinn snerist upp í andhverfu sína og ég get ekki meir. Ég hef engan áhuga á að starfa í pólitískum flokki af gamla skólanum, þrátt fyrir fallega stefnu, sem reyndar allir flokkar hafa. Þá hefði ég bara gengið í samfó,“ segir Herbert Sveinbjörnsson, fyrrverandi formaður flokksins í nokkurs konar kveðjubréfi til hreyfingarinnar.

Hanns egir erfitt að horfa á barnið sitt verða að athlægi og gera sig að fífli, horfa á það breytast í það sem hann fyrirlíti.

„Það sem maður taldi sig vera að berjast gegn. Tímanum og alúðinni sem maður eyddi í að næra, bastarðinn. Tími sem maður eyddi frá vinum og fjölskyldu í þeirri von að barnið kæmist til manns. Manns sem ég sá fyrir mér yrði málsvari heiðarleika, réttlætis og siðferðis,“ segir í bréfi Herberts.

Hann segir engan sáttavilja eða samstarfsvilja hjá þremur þingmönnum flokksins og vísar til Birgittu Jónsdóttur, Þórs Saari og Margrétar Tryggvadóttur.

„Flokksdindlar hrúgast um flokksfólkið, það tók ekki langan tíma. Kemur ekki maður í manns stað var svarið. Ég sat ágætis fund í kvöld í von um að finna neistann. Hann bara kom ekki. Vonarneistinn sem Borgarahreyfingin var fyrir mér dó þegar að 3/4 þingmanna okkar stunduðu framsóknarpólitík, hundsuðu lýðræðislega kosna stjórn hreyfingarinnar í einu og öllu og gerðu setu sína á þingi að einkaflippi í umboði sjálfs síns. 4. þingmaðurinn ber á mig að ég sé samsekur bréfaskriftum nokkrum, sem fylltu mælinn hjá okkur flestum, vegna þess að ég sendi honum ekki bréfið umsvifalaust. Vil ég engu að síður, að gefnu tilefni, lýsa yfir stuðningi mínum við hinn meinta "framsóknarmann" Þráinn Bertelsson og hans störf, hann einn stóð við gefin loforð og stundaði ekki framsóknarpólitík. Ég var svo sem varaður við, pólitík er með hundaæði og það þarf að lóga henni það er ekki til lækning önnur,“ segir í bréfi Herberts.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HOBBY 540 UFE 2006 M. ISABELLA FORTJALDI TIL SÖLU
Mjög vel með farið - lítur vel út - reyklaust - sólarsella. Uppl. í s. 893 5179...
Ódýr gisting í Laugardal - Rvk
Kíkið á. www.guesthousehelga.weebly.com S. 892-3451 ...
Kæli- og frystiklefar - allar stærðir
Kæli- og frystiklefar sem eru einstaklega auðveldir í uppsetningu. Hægt er að fá...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
Mjög góð og lítið notuð, Lítur út eins og ný, Fæst á aðeins 15000. ef tekin e...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...