Samkomulag í fjárlaganefnd

Af fundi fjárlaganefndar
Af fundi fjárlaganefndar Heiðar Kristjánsson

Fyrirvarar um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins voru afgreiddir úr fjárlaganefnd Alþingis um hálf þrjú leytið í nótt. Var það gert með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokksins.

Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, í fjárlaganefnd sagði í samtali við Ríkisútvarpið að hann hefði boðist til að útfæra breytingartillögu sem lögð yrði fyrir nefndina í dag en að á það hafi ekki verið fallist. Æskilegt hefði verið að meiri tími hefði verið gefinn til að afgreiða málið.

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir að mikilvægir efnahagslegir fyrirvarar hafi náðst fram, meðal annars verði greiðslur miðaðar við hagvöxt en ekki landsframleiðslu auk þess sem dregið hafi verið úr gengisáhættu. Með þessum breytingum sé tryggt að lífskjör Íslendinga skerðist ekki vegna þessara skuldbindinga.

Unnið verður að nefndarálitum og greinargerðum með tillögunum um helgina en ekki er búist við að önnur umræða fari fram á þinginu fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag, að því er fram kemur á vef Ríkisútvarpsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert