Fréttaskýring: Grafið í kapp við tímann
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is
Unnið hefur verið að fornleifauppgreftri á alþingisreitnum frá því í júlí á síðasta ári. Uppgröfturinn hefur leitt í ljós margar merkar minjar frá landnámstíð. Minjar um frumvinnslu járns hafa t.a.m. vakið mikla athygli, enda lítið vitað um járnvinnslu á víkingaöld. Margt bendir raunar til þess að á alþingisreitnum hafi verið iðnaðarsvæði tengt nálægðri byggð sem kann að reynast fyrsti vísir að þéttbýli í landinu. Heilsteyptari mynd krefst þó frekari rannsókna.
Heilt iðnaðarsvæði á reitnum
Fornleifauppgröfturinn á alþingisreitnum hefur að sögn Kristínar Huldar Skúladóttur, forstöðumanns Fornleifaverndar ríkisins, reynst gjöfulli en búist hafði verið við er farið var í útboð. Þess má geta að á svæðinu við hliðina á, sem nú hýsir bílastæði og bílakjallara Alþingis, fundust ekki yngri minjar en frá því um 1500. „Ég bjóst ekki við að finna heilt iðnaðarsvæði og vísi að þorpi,“ segir Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur, sem stýrir fornleifauppgreftrinum fyrir hönd verktakans Ljósleiða ehf. Séu allir uppgreftir á nálægum svæðum lagðir saman er kominn vísir að 50-80 manna þyrpingu.Samkvæmt útboðssamningi við Framkvæmdasýslu ríkisins á uppgreftri á alþingisreitnum að ljúka 31. október á þessu ári og skömmu síðar á að hefjast vinna við endurgerð Skjaldbreiðar – Kirkjustrætis 8, flutning húss Skúla Thoroddsen við Vonarstræti 12 yfir á horn Kirkjustrætis og Tjarnargötu, auk gerðar tengibyggingar þar á milli. Í deiliskipulagi er síðan gert ráð fyrir 7.100 m² nýbyggingu með 1.900 m² bílakjallara á reitnum.
Ekki er hægt annað en að velta fyrir sér hversu heppilegt sé að halda í núverandi skipulag, jafnvel þó að það miði að því að koma megi allri starfsemi Alþingis fyrir á alþingisreitnum.
Minjarnar verði aðgengilegar
Umtalsvert magn fornleifa hefur t.a.m. fundist á svæðinu sem ætlað er undir hús Skúla og segir Kristín Huld vilja standa til að koma sýningarrými fyrir undir kjallaranum með því að flytja ekki núverandi kjallara hússins. Vala telur það ásættanlega lausn, en á svæðinu hafa m.a. fundist óvenjuvel varðveittur viðarstígur, sem erfitt getur reynst að forverja, varnarveggur, kolagröf, aflar og rauðblástursofnar. „Það þarf að laga aðeins til, en flest er vel hægt að forverja með góðu móti og þá er hægt að gera 200 m² sýningarsvæði undir húsinu.“Jón. H. Ásbjörnsson, verkefnisstjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, staðfestir vel verði haldið á málum. „Það verður örugglega búið þannig um hnútana að það verða ekki skemmd mannvirki frá landnámsöld,“ segir Jón. Ekki liggur hins vegar enn fyrir hvenær svæðið verður sýningarhæft og segir Kristín Huld ekkert hægt að spá um það í núverandi efnahagsástandi.
Hvað frekari framvæmdir varðar telur Vala hins vegar nauðsynlegt að endurskoða skipulagið. „Eigi að halda í hugmyndina um 1.900 m² bílakjallara verður að taka allar þessar fornleifar í burtu og er það örugglega það sem við viljum?“





































