Fréttaskýring: Þúsund manns hafa ekki fengið inngöngu

Framhaldsskólarnir hefjast fljótlega en ekki eru allir sem hafa hug á komnir með skólavist stækka

Framhaldsskólarnir hefjast fljótlega en ekki eru allir sem hafa hug á komnir með skólavist Jim Smart

Morgunblaðið Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

Enn eru hátt í þúsund manns 18 ára og eldri, sem sótt hafa um framhaldsskólavist frá og með haustinu, sem ekki hafa fengið inni í neinum framhaldsskóla. Fæstir úr þessum hópi munu fá skólavist í dagskóla fyrr en hugsanlega um áramótin, en innan menntamálaráðuneytisins stendur til að skoða hvaða önnur menntunarúrræði standi þessum hópi til boða strax í haust.

„Þetta er aðeins lítilleg fjölgun frá fyrri árum, þannig að það er ekki beinlínis hægt að rekja þetta til ástandsins núna að þessi hópur fái ekki skólavist,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Tekur hún fram að hins vegar séu mun meiri líkur en áður á því að þessi hópur fái heldur ekki vinnu vegna efnahagsástandsins.

Sökum þessa hyggjast menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra skipa starfshóp sem hafi það hlutverk að fara yfir þau menntunarúrræði sem standi yngra atvinnulausu fólki til boða, þ.e. fólki yngra en 25 ára. Nefnir hún í því samhengi kvöldskóla, fjarnám, Mími og aðrar símenntunarstöðvar þar sem hægt sé að safna einingum á framhaldsskólastigi. „Við þurfum þannig að greina þarfir þessa hóps, því hann er alls ekki einsleitur,“ segir Katrín.

Taka þarf tölum með fyrirvara

„Það verður að taka þessum tölum með fyrirvara, því reynslan sýnir okkur að það eru ekki allir sem skrá sig sem hafa raunverulegan áhuga á námi,“ segir Ólöf Helga Þór, náms- og starfsráðgjafi hjá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Segir hún námsráðgjafa FB benda fólki eldra en 18 ára, sem sækist eftir dagskólavist en fær ekki, að fara í kvöldskóla því standi fólk sig vel þar séu góðar líkur til þess að það geti komist inn í dagskóla um áramótin.

Ólöf segir það heilmikið átak að henda sér aftur í fullt nám eftir nokkurra ára hlé og sitja á skólabekk með sér mun yngra fólki og því henti það mörgum betur að byrja rólega í kvöldskóla og taka tvö fög. Að sögn Ólafar hefur orðið nokkur breyting á bakgrunni nemenda í kvöldskóla FB eftir hrunið. „Við sjáum mörg dæmi þess að fólk sem tók kvöldskóla með vinnu hafi hætt því af ótta við að missa vinnuna. Þeir sem koma nýir inn í kvöldskóla eru í mörgum tilfellum fólk sem hefur misst vinnuna og vill nýta tímann meðan það er atvinnulaust,“ segir Ólöf.

Hún segir mikilvægt að fólk eldra en 18 ára sem hefur áhuga á framhaldsskólanámi leiti sér upplýsinga og ráðlegginga hjá náms- og starfsráðgjöfum ýmist hjá símenntunarstöðvum, framhaldsskólunum eða vinnumiðlunum því það sé svo ótal margt hægt að gera.

Undir þetta tekur Sigríður Birna Bragadóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Menntaskólanum við Hamrahlíð. „Það eru alltaf einhver úrræði. Fólk verður bara að vera duglegt að leita lausna, vera opið fyrir nýjum leiðum og gefast ekki upp,“ segir Sigríður. Tekur hún fram að í MH sé umsækjendum bent á að sækja kvöldskóla komist þeir ekki inn í dagskóla og sækja svo aftur um um áramótin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »
Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
2003 Honda Civic EX Great Condition
2003 Honda Civic EX 72,159 km(44,838 miles) Price / Verð: 1.198.000 Arnar ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...