Umfangsmikil rannsókn á Akureyri
Rannsókn lögreglunnar á Akureyri á máli manns, sem var haldið föngnum í íbúð og honum misþyrmt, hefur verið mjög umfangsmikil. Tveir karlmenn og ein kona voru úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna málsins. Konunni hefur verið sleppt, annar karlmaðurinn afplánar nú dóm vegna annars máls og krafist hefur verið áframhaldandi gæsluvarhaldi yfir hinum manninum.
Lögreglan segir, að nú liggi fyrir greinargóð mynd af atburðum. Karlmennirnir tveir, annar á þrítugsaldri en hinn um fimmtugt, eru m.a. grunaðir um frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás og fjárkúgun. Lögreglan segir, að yngri maðurinn virðist vera höfuðpaurinn í málinu. Þáttur stúlkunnar virðist minni en hún sé þó m.a. grunuð um að hafa ekki komið manni í lífsháska til bjargar.
Auk þeirra sem sættu gæsluvarðhaldi handtók og yfirheyrði lögreglan par á þrítugsaldri í síðustu viku, en ekki þótti ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Þá hefur lögregla yfirheyrt fjölda vitna og aflað viðamikilla gagna.
Atburðarásin virðist vera á þann veg að sunnudag skvöldið 9. ágúst var þolandinn í málinu, karlmaður um tvítugt, lokkaður af heimili sínu og heim til höfuðpaursins í málinu. Þar var honum haldið næsta hálfa sólarhringinn. Höfuðpaurinn segist hafa ætlað að rukka drenginn um skuld, til komna vegna fíkniefna, en upphæð skuldarinnar er mjög á reiki.
Ítrekað var gengið í skrokk á drengnum með höggum og spörkum um kvöldið og nóttina. Ekki var látið þar við sitja heldur var drengurin einnig sleginn með járnröri í höfuðið og víðar um líkamann. Drengurinn mátti þola ýmsar ógeðfelldar niðurlægingar yfir nóttina og grófar hótanir.
Lögregla rannsakar einnig hvort hinir grunuðu hafi gerst sekir um íkveikjutilraun og almannahættubrot þegar brennandi pappír var kastað að fanganum en íbúðin sem honum var haldið í er í fjölbýlishúsi.
Að morgni mánudagsins hringdi þolandinn í foreldra sína og var reynt að láta hann kúga fé út úr þeim. Foreldrarnir snéru sér hins vegar beint til lögreglu sem í framhaldi réðist til inngöngu í fjölbýlishúsið, frelsaði fangann og handtók mennina tvo og stúlkuna. Drengurinn var með töluverða áverka og var fluttur beint á slysadeild.
Gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur rann út í dag en eldri maðurinn hefur hafið afplánun vararefsingar. Lögreglan hefur farið fram á áframhaldandi gæslu yfir yngri manninum. Sá hefur játað sök að hluta en eldri maðurinn ber við minnisleysi um atburði. Mennirnir hafa báðir ítrekað komið við sögu lögreglu en þolandinn á litla sögu hjá lögreglu.


































