Meiðyrðamáli vísað til Strassborgar
Hús Mannréttindadómstólsins í Strassborg. mbl.is/GSH
Mál blaðamannsins Bjarkar Eiðsdóttur hefur, með stuðningi Blaðamannafélags Íslands og Birtíngs útgáfufélags ehf. verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg.
Kærð er niðurstaða Hæstaréttar í meiðyrðamáli, sem Ásgeir Davíðsson á veitingahúsinu Goldfinger höfðaði gegn blaðamanni og ritstjóra Vikunnar fyrir ummæli, sem höfð voru eftir fyrrum starfsstúlku á Goldfinger, m.a. að vændi tengdist starfseminni. Starfsstúlkunni fyrrverandi var einnig stefnt en það var dregið til baka eftir að hún staðhæfði fyrir dómi, að ekki væri rétt eftir henni haft í viðtalinu.
Héraðsdómur sýknaði bæði blaðamann og ritstjóra Vikunnar þar sem þær gætu ekki talist höfundar ummælanna. Hæstiréttur snéri niðurstöðunni við og taldi blaðamanninn höfund greinarinnar og samkvæmt prentlögum væri hann ábyrgur fyrir því sem fram kæmi þar.
Blaðamannafélagið segir, að kæra vegna málsins hafi verið send í dag til Mannréttindadómstóls Evrópu. Kvartað sé yfir því að niðurstaða Hæstaréttar í málinu brjóti gegn 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem Ísland hefur lögleitt. Mannréttindadómstóll Evrópu hafi margsinnis ítrekað í dómum sínum, að það feli í sér alvarlegt brot á tjáningarfrelsi og gangi gegn frelsi fjölmiðla að gera blaðamann ábyrgan fyrir orðum viðmælanda síns.
„Víðast hvar verður tjáningarfrelsi ekki takmarkað nema með ströngum undanþágum. Fleiri málaferli gegn íslenskum blaðamönnum og hærri sektardómar benda til þess að þróunin sé öfug hér á landi. Þannig hafa íslenskir dómstólar ekki sýnt fjölmiðlum nægan skilning í dómsmálum þar sem reynir á rétt fjölmiðla til að taka við og miðla áfram upplýsingum um umdeild málefni. Viðbrögð yfirvalda við umfjöllun um efnahagshrunið á Íslandi þar sem birtar voru leynilegar bankaupplýsingar sem var lekið í fjölmiðla, leiða einnig í ljós takmarkaðan skilning á rétti fjölmiðla til að birta upplýsingar sem varða almannahag þótt þeim kunni að hafa verið komið í hendur fjölmiðla með ólögmætum hætti," segir í tilkynningu Blaðamannafélagsins.
Bloggað um fréttina
-
Jenný Anna Baldursdóttir Gleðifréttir -
Magnús Óskar Ingvarsson Vafasamur dómur Hæstaréttar -
Anna Andulka Gott hjá Blaðamannafélaginu
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. ágúst 2010, Innlent Misrétti að strangari meiðyrðalög gildi fyrir ritmiðla
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Innlent Blaðamannafélagið mótmælir dómi
- Föstudagur, 6. mars 2009, Innlent Vikan lýsir furðu á dómi Hæstaréttar
- Fimmtudagur, 5. mars 2009, Innlent Blaðamaður dæmdur fyrir meiðyrði
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Innlent Í mál gegn Fréttablaðinu og Ásgeiri
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































