Siðferðileg álitaefni Icesave
Í áliti meirihluta fjárlaganefndar Alþingis um Icesave-frumvarpið, sem dreift var í kvöld, segir að siðferðileg álitaefni hafi verið mjög áberandi í umfjöllun nefndarinnar. Sú ágenga spurning voki yfir allri Icesave-deilunni hvort menn eigi að borga skuldir sem þeir hafi ekki stofnað til.
„Spurningin verður jafnvel enn ágengari þegar í ljós kemur að athafnamenn geta, í skjóli frjáls hagkerfis, hirt arðinn af starfsemi sinni en skilið skuldirnar eftir hjá almenningi ef illa fer. Sér er nú hver áhættan, segir almenningur sem vitnar til góðra gilda og almennra mannasiða í viðskiptum forfeðra sinna þar sem handsalið gilti og orðin stóðu," segir í nefndarálitinu.
Veltu afleiðingunum á breið bök almennings
Þá segir að Icesave-deilan dragi á strigann þá liti sem helst skera í augun vegna bankahrunsins: óbeislaða markaðshyggju sem fær næsta eftirlitslítið að leika lausum hala.
„Hún afhjúpar nýjar og óvenjulegar viðskiptavenjur sem í skjóli bankaleyndar var aldrei ætlað að koma fyrir augu almennings, hinna raunverulegu ábyrgðaraðila sem þó höfðu ekki minnstu hugmynd um að þeir væru ábekingar hins frjálsa hagkerfis. Í þessari mynd blasir það einnig við að bankastjórar, sem fengu ofurlaun og óskiljanlega háa kauprétti fyrir að bera hina miklu samfélagslegu ábyrgð, gátu þegar upp var staðið velt afleiðingum gjörða sinna yfir á hin raunverulegu breiðu bök sem alltaf hafa haldið uppi samfélaginu, almenning í landinu. Hér er kominn kjarni Icesave-deilunnar á Íslandi: bera menn ekki ábyrgð á gjörðum sínum, eða er ekki einmitt svo þegar bankarnir sjálfir krefja almenning um ábyrgðir og ábyrgðarmenn – og hver er miskunnin í frjálsum viðskiptum? Hér verður löggjafinn að staldra við," segir í álitinu.
Hætta á einangrun
Í nefndarálitinu er einnig fjallað um pólitísk álitamál tengd Icesave-málinu og m.a. vísað til álits meirihluta utanríkismálanefndar þar sem segir, að brýnt sé að leysa málið nú því hætt sé við að alþjóðlegri einangrun Íslands linni mun síðar ef samningar nást ekki.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Sigurðsson Hey you! -
Kolbrún Hilmars Siðferðilegt spursmál - vissulega. -
Margrét Sigurðardóttir ... en hvað svo? -
Magnús B Jóhannesson Nú er verið að hengja bakara fyrir smið - rökleysa ... -
Ómar Bjarki Kristjánsson Stofnun útibús -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Skilaboð frá Brussel -
Jón Baldur L'Orange Hvert hafa allir peningarnir farið? Vantraust á vinnubrögð fjármálaráðherra -
Guðni Karl Harðarson Ha? siðferðilegt álitaefni? -
Erla Einarsdóttir Kjarni málsins... -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Rétt að snúa sér að raunveruleikanum! Látum einstaklingana sem stofnuðu ... -
Jóhann Elíasson "EINANGRUN"?????????
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. ágúst 2009, Innlent Icesave-áliti dreift á þingi
- Miðvikudagur, 23. desember 2009, Innlent Nauðsynlegt að samþykkja Icesave
- Fimmtudagur, 20. ágúst 2009, Innlent Kolröng söguskýring
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Afgreiðsla Icesave skerðir ekki skaðabótarétt
- Þriðjudagur, 17. nóvember 2009, Innlent Ekki hætta á greiðsluþroti
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































