Talsvert ekið á sauðfé

mbl.is/Árni Torfason

Ekið var á átta kindur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum síðustu helgi. Hraði ökumanna annað hvort að aukast eða ökumenn taka ekki lengur eftir sauðfé í vegakanti, segir lögregla.

„Svo virðist sem hraði ökumanna sé eitthvað að aukast eða þá að ökumenn taki ekki lengur eftir kindunum í vegkantinum", segir Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, í samtali við svæðisfréttir Vestfjarða og Vesturlands.

Hann segir það óvenjulegt að svo mörg búfjárslys verði í umdæminu á ekki lengri tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert