Kjaradeila lögreglumanna til sáttasemjara
„Það var sameiginleg niðurstaða aðila að vísa málinu til ríkissáttasemjara. Það er gott fyrir báða aðila að fá hlutlausan aðila til að stýra viðræðum, okkur finnst það vænlegri leið til að ná niðurstöðu. Fyrsti formlegi fundur undir stjórn sáttasemjara verður þriðjudaginn 1. september,“ segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, LL.
Lögreglumenn kolfelldu nýgerðan kjarasamning við ríkið í liðinni viku. Já sögðu 31 eða 7,51%, nei sögðu 374 eða 90,56% og 8 skiluðu auðu eða 1,94%.
Framkvæmdastjóri LL segir að kröfugerð lögreglumanna liggi fyrir og hafi gert um langa hríð.
Helsti ásteytingarsteinninn er greiðsla sem bætt var ofan á laun lögreglumanna í október 2007 vegna aukins álags í starfi. Í kjaraviðræðum 2008 var helmingur 30 þúsund króna álagsgreiðslunnar færður inn í kjarasamning en hinn helmingurinn, 15 þúsund krónur, var ennþá greiddur samkvæmt samkomulagi. Þegar kjaraviðræður voru um það bil að hefjast fyrr á þessu áru var lögreglumönnum tilkynnt að sá helmingur álagsgreiðslunnar sem ekki hafði ratað inn í kjarasamninga í fyrra, yrði skorinn af.
„Þetta er augljóslega eitt þeirra stóru atriða sem skiptu máli varðandi þessa afdráttarlausu afstöðu lögreglumanna. Í aðdraganda kjaraviðræðna er lögreglumönnum tilkynnt um þessa 15 þúsund króna kjaraskerðingu, ofan á allt annað sem lögreglumenn, líkt og allir hjá hinu opinbera hafa þurft að taka á sig. Og það er fyrirséð að frekari skerðingar eru boðaðar hjá lögreglumönnum líkt og öðrum,“ segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri LL.
Steinar segir lögreglumenn gera sér grein fyrir því að ríkið hafi ekki mikið svigrúm til að gera betur við eina stétt en aðra við þær aðstæður sem nú eru.
„En það er sameiginlegt verkefni okkar og ríkisins að finna lausn sem líklegt er að lögreglumenn sættist á. Ekki viljum við á næstu mánuðum fara inn í meiri ólgu í þjóðfélaginu með ólgu innan lögreglunnar,“ segir Steinar.
Innlent »
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Kjaradeila lögreglumanna fyrir gerðardóm
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Lögreglumenn skoða úrsögn úr BSRB
- Þriðjudagur, 9. september 2008, Innlent Lögregla fái meiri þjálfun í að verjast
- Laugardagur, 25. október 2008, Innlent Samið við lögreglumenn
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Lögreglumenn í búsáhaldabyltingu?
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































