Fréttaskýring: Lyfin lækka en hækka í raun
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
Lyfjakostnaður sjúkratrygginga stefnir í 10,9 milljarða á þessu ári. Kostnaðurinn var 9,3 milljarðar fyrir árið 2008 en var 7,1 milljarður árið 2007. Áætla má að gengishrunið sem hófst um mitt ár 2008 hafi aukið kostnað sjúkratrygginga vegna lyfja um 6 milljarða á þessum tveimur árum. Um 80% kostnaðar sjúkratrygginga er háð gengi.
Aðgerðir haft veruleg áhrif
Sé hinsvegar horft framhjá gengishruninu hefur lyfjakostnaður sjúkratrygginga lækkað um a.m.k. 1 milljarð á milli áranna 2008 og 2009 vegna ýmissa aðgerða sem gripið hefur verið til. Þar má telja breytingar á reglugerð frá 1. mars vegna maga- og blóðfitulækkandi lyfja sem felast í því að sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu ódýru lyfjanna í hverjum lyfjaflokki fyrir sig. Reynist lyfin ófullnægjandi er hægt að sækja um lyfjaskírteini fyrir dýrari lyfjum.Til stendur að hefja svipaðar aðgerðir vegna blóðþrýstingslyfja þann 1. október og er áætlað að breytingar á greiðsluþátttöku vegna þeirra muni lækka lyfjakostnað sjúkratrygginga um 200-300 milljónir á ársgrundvelli og er sá sparnaður ekki tekinn með í áætluninni fyrir 2009. Samkvæmt upplýsingum úr heilbrigðisráðuneytinu er stefnt á frekari aðgerðir til að ná kostnaðinum niður og er nú róinn lífróður til að halda ramma fjárlaganna þar sem gert var ráð fyrir 10,3 milljarða útgjöldum sjúkrasjóðs í ár.
Þá vinnur lyfjagreiðslunefnd að heildarverðendurskoðun lyfja, Finnlandi hefur verið bætt við sem viðmiðunarlandi og er talið að það muni lækka lyfjaverð töluvert þó gengisáhrifin verði eftir sem áður til staðar.
„Sjúklingar með lyfseðilsskyld lyf hafa verið nokkuð vel varðir því þök eru á greiðsluþátttöku þeirra. Greiðsluþakið var hækkað þann 1. mars en þá voru jafnframt gerðar breytingar. Börn og atvinnulausir fara nú í lægri greiðsluflokk,“ segir Rúna Hauksdóttir, formaður lyfjagreiðslunefndar. Lyfjagreiðslunefnd ákvarðar bara verð lyfseðilsskyldra lyfja en frjáls álagning er á lausasölulyfjum. Á þeim hefur einnig orðið veruleg hækkun þar sem þau eru einnig flutt inn í erlendri mynt.
Innlent »
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Áætlað að lækka kostnað um 780 milljónir
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Lyfjakostnaður jókst um 16%
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent Sparnaður vegna lyfja um 1,6 milljarðar
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Innlent Lyfjakostnaður jókst um 32%
- Sunnudagur, 15. febrúar 2009, Innlent Lyfjaútgjöld lækka um milljarð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































