Stækkun urðunarstaðar við Flateyri ekki í umhverfismat

Sorpbrennslustöðin Funi. Úrgangur, aska og óbrennanlegt sorp frá sorpbrennslunni Funa á Ísafirði er urðað við ... stækka

Sorpbrennslustöðin Funi. Úrgangur, aska og óbrennanlegt sorp frá sorpbrennslunni Funa á Ísafirði er urðað við Klofning í Önundarfirði. Mynd bb.is

Stækkun urðunarstaðarins við Klofning í Önundarfirði þarf ekki að fara í umhverfismat, samkvæmt ákvörðun Skipulagsstofnunar.

Ísafjarðarbær er landeigandi og framkvæmdaraðili. Urðunarstaðurinn er á flötum hjalla, í um 35 metra hæð yfir sjó, um 1,5 kílómetra utan við íbúðabyggðina á Flateyri. Urðunarsvæðinu var skipt upp í fjóra reiti sem fyrirhugað er að nýta í jafn mörgum áföngum. Urðunarsvæði fyrsta áfanga, um 10.000 m², er að verða fullnýtt en urðun hófst þar 1993. Svæði annars áfanga, sem nú á að taka í notkun er um 8.400 m² að stærð. Fyrir neðan urðunarstaðinn er hár stallur niður í fjöruna.

Rekstur urðunarstaðarins byggir á því að urða úrgang, ösku og óbrennanlegt sorp frá sorpbrennslunni Funa á Ísafirði. Aska er og verður flutt í lokuðum gámum og óbrennanlegt sorp í sérstökum gámum frá Funa og öðrum gámasvæðum sveitarfélagsins, á sérútbúnum bifreiðum. Gert er ráð fyrir að í náinni framtíð verði byggð flokkunarstöð við Funa og með því móti verði hægt að lágmarka úrgang sem fari til urðunar.

Gert er ráð fyrir að urðun verði tæplega 500 tonn á ári og minnki um 25% eftir að flokkunarstöð er komin í gagnið og verði þá um 370 tonn á ári. Urðun mun fara fram vikulega.

Frágangur að urðun lokinni verður þannig að svæðið falli sem best að umhverfinu. Ekki er áformuð nein nýting á svæðinu að urðun lokinni, þó má gera ráð fyrir að svæðið verði nýtt að einhverju leyti til útivistar. Urðunarstaðurinn er á snjóflóðahættusvæði og því ekki gert ráð fyrir byggingum á svæðinu.

Áætlað er að annar áfangi urðunarstaðarins dugi í 13 ár, frá lokum ársins 2009 eða byrjun árs 2010.

Skipulagsstofnun telur að stækkun urðunarstaðarins við Klofning í
Önundarfirði, sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð
umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 21. september.

Vefur Skipulagsstofnunar

PDF-skrá Ákvörðun Skipulagsstofnunar
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »
Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
HREINSISPREY
Kristals-hreinsisprey Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur og kr...
Hjólavagnar
Glæsilegir hjólavagnar. Sterkir og liprir. Lág verð, heildsala - lagersala. www...
Frábær kraftblásari
Eigum nokkra kraftblásara eftir á frábæru verði kr.39.900.- Alvöru kraftur 280...
 
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...