17 á mælendaskrá um Icesave

Umræða um Icesave-málið stóð yfir á þingi í allan gærdag.
Umræða um Icesave-málið stóð yfir á þingi í allan gærdag. mbl.is/Eggert

Önnur umræða um Icesave-frumvarpið heldur áfram á Alþingi í dag og er það eina málið á dagskrá. Umræðan í gær stóð yfir frá kl. 9 til hálf tólf í gærkvöldi. Þá höfðu 22 þingmenn flutt ræður um málið og fjöldi þingmanna fóru í ræðustól í andsvörum við flestar ræðurnar.

Við upphaf þingfundar kl. 10 í morgun voru 17 þingmenn á mælendaskrá í 2. umræðu um málið en búist er við að henni ljúki í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert