Stækkun friðlands í Þjórsárverum ljúki á næsta ári
Undirbúningur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum hefst nú þegar samkvæmt tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra sem var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Umhverfisráðherra vill ljúka stækkun friðlandsins eigi síðar en snemma árs 2010.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Þar kemur fram að í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segi að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið hið fyrsta.
Stækkunin verði unnin í samræmi við ákvæði náttúruverndarlaga og undirbúningurinn verði í höndum Umhverfisstofnunar í samráði við landeigendur, viðkomandi sveitarfélög og aðra þá sem hagsmuni eiga að gæta.
Aðgerðir til að efla sjálfbærar samgöngur
Þá samþykkti ríkisstjórnin á fundi í morgun að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Áætluninn verður unnin á vegum Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Kristjáns Möller samgönguráðherra en auk þess verður haft náið samstarf við fulltrúa fjármálaráðherra vegna breytinga sem lúta t.d. að skatta- og gjaldamálum.
Umhverfisráðherra og samgönguráðherra eru sammála um eftirfarandi aðgerðir sem lúta að almenningssamgöngum, hjólreiðum og öðrum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda:
- Að auðvelda uppbyggingu hraðvagnakerfis með því að stuðla að aukinni forgangsröðun almannavagna í umferð auk þess sem hugað verði að því að hvetja almenning til að nota almenningssamgöngur.
- Að hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Þannig verði opinber fyrirtæki og stofnanir hvött til að niðurgreiða fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Einnig verði skoðuð möguleg aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó.
- Að styðja við hjólreiðar almennings með því að leggja til breytingar á vörugjöldum á innflutningi á reiðhjólum og vara- og fylgihlutum fyrir þau.
- Að breyta reglum sem hvetja olíufélög til að blanda bensín með lífetanóli og dísilolíu með lífdísilolíu og takmarka innflutning ökutækja sem losa mikið magn gróðurhúsalofttegunda, takmarka innflutning á bílum sem ekki geta gengið fyrir íblönduðu eldsneyti.
- Að vinna með fjármálaráðuneyti að því að hraða breytingum á skattlagningu ökutækja og eldsneyti sem taki mið af umhverfissjónarmiðum.
- Að auka áróður og fræðslu um umhverfisáhrif og kostnað mismunandi samgöngukosta.
Bloggað um fréttina
-
Axel Þór Kolbeinsson Að auka áróður ??? -
Þórarinn Þ Gíslason FRIÐUNARSVÆÐI ÞJÓRSÁRVERA STÆKKUÐ ! JÁ, TAKK, JÁ TAKK, -
Ómar Ragnarsson Svefnþornið virkar aftur og aftur.
Innlent »
- Vill ekki þvinga fólk til að skipta um ferðamáta
- Ókyrrð í lofti raskar flugi
- 86 heimafæðingar árið 2010
- Máttu ekki hafa sama verjanda
- Afsökunarbeiðni til Kópavogsbúa
- Um 850 jarðskjálftar í janúar
- Fjórum sagt upp hjá Vesturmjólk
- Leggur til lækkun á hesthús
- Gefið blóð 150 sinnum
- Gefur eftir kröfu um ópólitískan bæjarstjóra
- Allir þurftu að slá af
-
Heitavatnslaust í leikskólanum
- Dæmdur til að greiða Byko 19 milljónir
- Sammála ábendingum Ríkisendurskoðunar
- 467 milljónir til listamanna
- Sýknaður af líkamsárás
- Ármann verður bæjarstjóri
- Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald
- Heimsækir sjávarútvegsfyrirtæki á Bretlandi
- Áttum of mikið af hlutabréfum
- Spornað gegn ólöglegum útflutningi
- Kröpp lægð síðdegis
- Ólögleg lán úr styrktarsjóðum
- Endurbætur á Klettaskóla
- Eftirlit að mestu í samræmi við samninga
- CCP og GreenQloud semja við Verne
- Selja til að lána OR
- Kostar tvo milljarða
- Ekki fallist á kröfu Glitnis
-
Blár Ópal vinsæll á ný
- Skorað er á forsætisráðherra
- Hringdi í pabba sinn eftir hjálp
- Helmingur ferðast aldrei með strætó
- Rauðir hundar greinast á Íslandi
- Borgin bætir við sig
- Setur dagsektir á Arion banka
- Borgin fer yfir dóminn
- Eyddu ekki upplýsingum um rannsókn
- Hefur ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur
- Fráleitt og fordæmalaust
- Birgir Þórarinsson: Ísrael/Palestína
- Fjölgun tvítyngdra nemenda
- Seinkun á flugi vegna bilunar
- Dominique Plédel Jónsson: Líftækni
- Krefst jöfnunar lífeyrisréttinda
- Hátt brottfall úr skólum á Íslandi
- Hestamenn í Borgarbyggð óánægðir
- Yfir 23 þúsund á bannskrá
- Náðu saman um málefnasamning
- Hlaut 6,5 milljóna rannsóknastyrk
- Hafði aldrei tekið bílpróf
-
Leiðin að draumastarfinu
- Hættuleg hálka á Suðurlandi
- 0,6% halli á HSu
- Alþingi geri úttekt á lífeyrissjóðunum
- Össur: Krugman og krónan
- Ætlar að birta upplýsingar um kadmíum
- Þingið ákveði löggildingu iðngreina
- Taka áhyggjur landgræðslustjóra alvarlega
- Skíðasvæðið í Tindastól opið
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Vilja láta bæta aðgengi að friðlandinu í Þjórsárverum
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Taka undir með umhverfisráðherra
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Neitað um farsímasendi
- Þriðjudagur, 27. apríl 2010, Innlent Mælingar á svifryki efldar
- Föstudagur, 27. ágúst 2010, Innlent „Snýst um friðlýsinguna sjálfa“
-
Obama hrósaði Monti
-
Anton: Þeir voru grimmari og ákveðnari
-
Stefán: Tapað stig, engin spurning
-
Hilmar: Vanur að taka víti gegn Sebastian
-
Kvikmyndahátíðin í Berlín sett
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
-
Ólafur Bjarki: Kláruðum færin í seinni hálfleik
-
Dikta fer yfir strikið




































