Lítið þokast í kjaradeilu slökkviliðsmanna
„Það gekk ekkert. Viðmið vegna launahækkana og starfslokaaldur eru m.a. þau atriði sem okkur greinir á um,“ segir Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, LSS eftir fund með Launanefnd sveitarfélaga í dag.
Félagsmenn í LSS kolfelldu nýgerða kjarasamninga við ríkið og Launanefnd sveitarfélaga á dögunum. Samningur slökkviliðsmanna við sveitarfélög var felldur með 85% greiddra atkvæða. 13% sögðu já. Svipuð niðurstaða varð í kosningu um samning við ríkið vegna sjúkraflutningamanna. 85% sögðu nei en 14% já.
Í kjölfarið var deilunni vísað til ríkissáttasemjara og hittust samninganefndir á fyrsta fundi í dag. Lítið þokaðist áfram. Meðal þess sem tekist er á um, eru taxtahækkanir sem samið var um á almennum markaði í tengslum við stöðugleikasáttmálann. Launanefnd sveitarfélaga vill miða við þann launaflokk sem slökkviliðsmenn eru í, eftir að búið er að bæta við launaflokkum vegna námskeiða og annarra réttinda. LSS vil miða við grunnröðun í launaflokka, líkt og á almennum vinnumarkaði. Að öðrum kosti fái félagsmenn LSS ekkert út úr samningnum. Þá er einnig tekist á um starfslokaaldur. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fara á eftirlaun 67 ára en LSS hefur sett fram kröfu um að starfslokaaldur verði færður niður í 60 ár.
„Þessi fyrsti fundur gefur ekki tilefni til bjartsýni en við ákváðum að hittast á ný 31. ágúst,“ segir framkvæmdastjóri LSS.
Samninganefnd LSS hitti í vikunni samninganefnd ríkisins vegna kjarasamninga sjúkraflutningamanna. Annar fundur hefur ekki verið boðaður með ríkinu en samningar slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa haldist í hendur.
Þá þingaði samninganefnd LSS líka í dag með Samtökum atvinnulífsins vegna slökkviliðsmanna sem starfa hjá Keflavíkurflugvelli ohf. Um 50 slökkviliðsmenn starfa á vellinum og rennur gildandi kjarasamningur út 31. ágúst nk. Framkvæmdastjóri LSS segist ágætlega bjartsýnn eftir þennan fyrsta fund í dag vegna slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli en nýr samningafundur er boðaður 4. september.
Innlent »
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Lítið þokast í kjaraviðræðum slökkviliðsmanna
- Þriðjudagur, 31. ágúst 2010, Innlent Kjarasamningur samþykktur naumlega
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Innlent Biðja um launaleiðréttingu
- Miðvikudagur, 21. júlí 2010, Innlent Slökkviliðsmenn að brenna út
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Segja um skrípaleik að ræða
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































