Safna fyrir hvíldarheimili
Lokahnykkur söfunarátaksins Á allra vörum verður á föstudagskvöldið eftir viku en þá verður söfnunarþáttur í beinni útsendingu á SkjáEinum. Söfnunarátakið hófst á síðasta ári og hefur haldið áfram á þessu ári með sölu á varaglossum frá Dior.
Söfnunarþátturinn hefst á SkjáEinum klukkan 21 og verður „skemmtiþáttur með tilgangi", þar sem landsþekktar konur og karlar leggja málefninu lið á margvíslegan hátt og allir gefa vinnu sína til styrktar hvíldarheimili krabbameinssjúkra barna.
Meðal þeirra sem að útsendingunni koma eru Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Svanhildur Hólm og Guðrún Þórðardóttir en þær stýra þættinum og þar með söfnuninni. Börn og unglingar úr söng- og leiklistarskólanum Sönglist styðja við bakið á jafnöldrum sínum en þar á meðal er hin íslenska söngrödd Sollu stirðu. Hljómsveitin Mannakorn með þá Magnús Eiríksson og Pálma Gunnarsson í broddi fylkingar flytur nokkur lög, en Mannakorn hefur einmitt gefið allan ágóða af laginu Von í söfnunina fyrir hvíldarheimilið. Stöllurnar úr Fúlar á móti segja sitt álit á lífinu og tilverunni.
Auk þessa kynnast áhorfendur því hvernig fjölskyldur sem kljást við þennan illvíga sjúkdóm læra að lifa með og takast á við krabbamein og hvers vegna hvíldarheimili er svo þýðingarmikið fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Bein útsending er frá sjónvarpssal SkjásEins og þjónustuveri Já – 118 þar sem landsþekktir einstaklingar svara í sérstakt áheitanúmer, en símanúmer sem tengjast ákveðnum upphæðum verða opnuð fáeinum dögum fyrir útsendinguna. Einnig verður útsendingin send út á vef Morgunblaðsins; www.mbl.is.Útsendingin „Á allra vörum" er sameiginlegt átak forsvarskvenna átaksins „Á allra vörum", Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og SkjásEins. Allir þeir sem koma að útsendingu þáttarins gefa vinnu sína líkt og á síðasta ári.
Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að hringja í áheitanúmerin eða með því að leggja inn á reikning „Á allra vörum". Reikningsnúmerið er 0101-26-55555 og kennitala 510608-1350.
Innlent »
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Átakið Á allra vörum af stað á ný
- Föstudagur, 28. ágúst 2009, Innlent Á allra vörum í fullum gangi
- Föstudagur, 28. ágúst 2009, Innlent 30 milljónir hafa safnast
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Litagloss og lagið Von á allra vörum
- Föstudagur, 27. ágúst 2010, Innlent Rúmar 32 milljónir söfnuðust
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































