Sementsverksmiðjan berst fyrir lífi sínu

Mikill samdráttur er hjá Sementsverksmiðjunni á Akranesi
Mikill samdráttur er hjá Sementsverksmiðjunni á Akranesi mbl.is/Skapti

„Það er að mínu mati ámælisvert að opinberir aðilar skuli ekki styðja innlenda framleiðslu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Viðræður standa nú yfir við forsvarsmenn Sementsverksmiðjunnar á Akranesi um að lækka starfshlutfall starfsmanna tímabundið niður í 50% vegna þess samdráttar sem nú á sér stað í sölu á sementi.

Sá mikli samdráttur sem orðið hefur á byggingamarkaði í kjölfar bankahrunsins sé hefur gert starfsemi Sementsverksmiðjunnar erfitt fyrir en töluverður samdráttur hefur verið á sölu sements á þessu ári.

Formaður VLFA segir það vekja furðu að fyrirtæki sem er í eigu íslenska ríkisins skuli kaupa innflutt  sement frá Danmörku á sama tíma og verksmiðjan á Akranesi berst fyrir lífi sínu.

Það er Aalborg portland Helguvík sem er íslenskt fyrirtæki í eigu Dana sem flytur inn sement frá Danmörku og hafa verið flutt inn rúm 20 þúsund tonn á þessu ári að verðmæti um 240 milljóna í gjaldeyri. Í fyrra voru flutt inn um 111 þúsund tonn af dönsku sementi.

„Helsti kúnni Aalborg sem flytur inn danska sementið er Steypustöðin h.f sem er í eigu Íslandsbanka og eins og flestir vita er Íslandsbanki í eigu ríkisins. Það vekur einnig um mikla furðu að verið er að nota innflutt dansk sement í Hellisheiðarvirkjun sem Orkuveitan er að gera en rétt er að geta þess að Akranesbær á 5 % í Orkuveitunni.  Það er einnig verið að nota danska steypu við brúarsmíði yfir Hvítá á vegum Vegagerðar ríkisins. Það er ámælisvert að opinberir aðilar eins og ríkið og Orkuveita Reykjavíkur skuli ekki styðja íslenska framleiðslu og um leið leggja grunn að tryggari starfsemi Sementsverksmiðjunnar sem hefur þjónað okkur Íslendingum allt frá árinu 1958 eða í rúm 50 ár,“ segir formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Sementsverksmiðjan á Akranesi hefur frá upphafi framleitt rúmlega 5,5 milljónir tonna af sementi úr innlendu hráefni. Vilhjálmur Birgisson segir að verði stoðunum kippt undan starfsemi verksmiðjunnar muni það hafa alvarlegar afleiðingar. Um 50 manns og um 90 afleidd störf glatist, tækniþekking sem byggð hefur verið upp á síðustu áratugum verði að engu og sement sem er aðlagað að þörfum íslensks markaðar, víki fyrir innfluttu sementi.

Formaður VLFA segir að það verði að standa vörð um þá framleiðslu og störf sem unnin eru í Sementverksmiðjunni á Akranesi með öllum tiltækum ráðum enda hafi hún skilað íslensku samfélagi miklum arði og sparað gríðarlegan gjaldeyrir fyrir þjóðarbúið. Íslenskt atvinnulíf megi ekki við því að tapa fleiri störfum en orðið er og því verði að styðja við íslenska framleiðslu.

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hvetur ríkisstjórn Íslands til að standa vörð um Sementsverksmiðjuna og sjá til þess að fyrirtæki í eigu ríkisins styðji íslenska framleiðslu og um leið noti íslenskt sement.

Vefur VLFA

Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert