Átta líkamsárásir tilkynntar

Mikill mannfjöldi var á Ingólfstorgi í gærkvöldi.
Mikill mannfjöldi var á Ingólfstorgi í gærkvöldi. mbl.is/Júlíus

Átta líkamsárásir hafa verið tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir Menningarnótt. Lögreglan segir að árásirnar hafi allar verið minniháttar. Fjögur voru handtekin, grunuð um ölvun við akstur.

Tveir voru handteknir snemma í morgun en um var að ræða tvo karlmenn á fertugsaldri. Þeir voru reyndar í sama bílnum sem hafði verið ekið á ljósastaur á Laugarásvegi. Ekki er fyllilega ljóst hvor þeirra var undir stýri þegar bíllinn hafnaði á staurnum en  grunur leikur á að báðir hafi komið við sögu í þessari ökuferð.

Um tvöleytið í nótt var karlmaður á þrítugsaldri tekinn fyrir ölvunarakstur á Skúlagötu og litlu síðar var 19 ára stúlka stöðvuð fyrir sömu sakir í Smáíbúðahverfinu. 

Unglingasamkvæmi í austurborginni fór úr böndunum í nótt en í það mættu mikið af óboðnum gestum. Húsráðandi, 15 ára stúlka, fékk aðstoð lögreglu við að vísa fólkinu út.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert