Ekið á 10 ára dreng

Ekið var á 10 ára dreng á Hringbraut í Reykjavík um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglu eru meiðsli hans voru ekki talin alvarleg.

Lögreglan segir, að talsvert hafi verið um að ökutækjum væri illa og/eða ólöglega lagt í og við miðborgina, sértaklega þó í Þingholtunum og nágrenni eftir hádegi og fram eftir degi.

Mjög mikil umferð var á miðborgarsvæðinu eftir að flugeldasýningunni lauk á 12. tímanum í gærkvöldi en lögregla segir, að ágætlega hafi gengið að greiða úr henni, ekki síst á Sæbraut. Þeir sem fóru um Hringbraut og Bústaðaveg voru hinsvegar aðeins lengur til síns heima en á síðartalda staðnum varð umferðaróhapp á tólfta tímanum í gærkvöld. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert