Fá breska fjárfesta inn í rekstur Haga
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Eigendur Haga stefna að því að gera Haga að skuldlausu félagi innan tveggja ára og endurfjármagna það síðan að nýju með þátttöku erlendra fjárfesta. Um er að ræða breska fagfjárfesta á sviði smásöluverslunar. Jón Ásgeir Jóhannesson staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið.
Þau félög sem mynda rekstur Haga eru m.a. Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf og tískuverslanir eins og Zara, Debenhams, Topshop, Coast og Oasis, en um tvö þúsund manns vinna hjá samstæðunni.
Eins og Morgunblaðið greindi frá síðastliðinn laugardag mun Nýja Kaupþing hugsanlega taka yfir 95,7% eignarhlut í Högum, en Kaupþing fjármagnaði kaup 1998 ehf., sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu, á Högum í júlí á síðasta ári fyrir þrjátíu milljarða króna gegn veði í 95,7% hlut og er lánið staðsett hjá Nýja Kaupþingi í dag.
Jón Ásgeir segir enga hættu á því að bankinn taki yfir rekstur Haga.
Fram hefur komið að lánið sé á einum gjalddaga á árinu 2010, en Jón Ásgeir segir það ekki rétt. Hann segir að fjármögnunin sé tvískipt til sex ára. Fyrri hlutinn sé á gjalddaga árið 2011 og sá síðari árið 2014. „Félagið mun standa við sínar skuldbindingar,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun Nýja Kaupþing samt sem áður fylgjast áfram gaumgæfilega með rekstri Haga til að vernda hagsmuni sína.
Jón Ásgeir segir rekstur Haga ganga vel þrátt fyrir þrengingar í íslensku efnahagslífi. Það sé ekki aðeins matvöruhlutinn sem gangi vel heldur einnig sérvöruverslanir félagsins. „Fyrirtækið er á áætlun og gott betur. Sérvaran hefur gengið mjög vel, ekki síst vegna þess að verslunin hefur færst heim frá útlöndum,“ segir hann.
Bloggað um fréttina
-
Andri Geir Arinbjarnarson Hagar í hendur almennings í almennu hlutafjárútboði! -
Heimir L Fjeldsted Kók og greind -
Axel Jóhann Axelsson Útrásinni haldið áfram -
Hrafn Arnarson Breska innrásin og Jón Ásgeir . -
Arnar Bergur Guðjónsson Takið eftir þessu!!! -
Þórarinn Þ Gíslason EINS GOTT AÐ HALDA ÞVÍ TIL HAGA HVER Á HAGA ... -
Gunnlaugur Bjarnason Auðvaldssleikjurnar enn að !
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Hagar í Kauphöllina
- Þriðjudagur, 24. nóvember 2009, Innlent Segja ákvörðun Arion ráðgátu
- Miðvikudagur, 4. nóvember 2009, Innlent Skilanefnd ekki viðriðin samninga við 1998
- Sunnudagur, 15. nóvember 2009, Innlent Mikill áhugi á Högum
- Laugardagur, 16. janúar 2010, Innlent Jón Ásgeir segir Walker með í tilboðinu í Haga
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































