Pissaði framan við lögreglustöðina

Vinnupallurinn, sem konan datt niður úr.
Vinnupallurinn, sem konan datt niður úr. mynd/bb.is

Maður var um helgina staðinn að því að kasta af sér þvagi á almannafæri á Ísafirði. Lögreglan á Vestfjörðum þurfti ekki að fara langt til að ná manninum því hann pissaði á kyrrstæðan bíl á bílastæðinu fyrir utan lögreglustöðina í bænum.

Þá datt kona á miðjum aldri fram af vinnupalli við hús á Norðurvegi á Ísafirði klukkan átta á laugardagsmorgun. Að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum klifraði konan upp í vinnupallinn og féll niður er hún var komin efst upp í hann. Fallið var um fimm metrar en henni varð ekki meint af því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert