Á vanskilaskrá í greiðsluaðlögun
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is
„Ég fékk enga viðvörun um að kreditkortinu mínu yrði lokað rétt fyrir síðustu mánaðamót sem voru um verslunarmannahelgina. Ég var strax sett í stöðu gjaldþrota einstaklings í bankanum mínum vegna greiðsluaðlögunarinnar sem ég hafði fengið. Það var ekki beðið eftir því að launin mín yrðu lögð inn.“
Þetta segir Guðbjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi sem fékk greiðsluaðlögun samþykkta í héraðsdómi í síðari hluta júlímánaðar.
Guðbjörg, sem er öryrki, hafði lent í greiðsluerfiðleikum þar sem hún sat uppi með tvær fasteignir. Hún bjó í raðhúsi en ætlaði að minnka við sig og keypti sér íbúð áður en raðhúsið var selt. Viku eftir að hún gekk frá kaupsamningi um íbúðina hrundi fasteignamarkaðurinn.
„Nú er ég búin að selja raðhúsið á undirverði en ég þurfti á greiðsluaðlögun að halda vegna þeirrar stöðu sem ég var komin í,“ segir Guðbjörg.
Viku eftir úrskurð héraðsdóms um greiðsluaðlögun barst Guðbjörgu bréf frá Lánstrausti um að hún færi á vanskilaskrá yrði mál hennar ekki gert upp innan 14 daga. „Daginn eftir að bréfið barst lokaði bankinn kortinu mínu. Ég fór í bankann strax eftir verslunarmannahelgi. Þar var mér sagt að samkvæmt reglum bankans væri ég meðhöndluð eins og vanskilamanneskja. Með aðstoð lögmannsins sem hafði verið skipaður umsjónarmaður minn fékk ég fyrir náð og miskunn 50 þúsund krónur af 500 þúsund króna yfirdráttarheimildinni minni til þess að ég gæti keypt mat og skólagögn fyrir dóttur mína. Ég hef alltaf staðið í skilum við þennan banka minn.“
Bloggað um fréttina
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Það þarf að innsigla hjá hræætunum. -
Eyþór Arnalds Vanhugsuð lausn -
Ómar Geirsson Svínin komu okkur á hausinn. -
Tómas Ibsen Halldórsson Gjaldþrot greiðsluaðlögunar -
Marinó G. Njálsson Ill eru úrræði Jóhönnu
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Mögulega á vanskilaskrá í fjögur ár
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Gagnrýna að fólk sé sett á vanskilaskrá
- Mánudagur, 20. september 2010, Innlent Ekki í anda laganna
- Miðvikudagur, 22. september 2010, Innlent 550 hafa fengið greiðsluaðlögun
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































