Mannleg mistök við Herðubreið

Herðubreið
Herðubreið Rax / Ragnar Axelsson

Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma því áleiðis að Landhelgisgæslan neitaði ekki að senda þyrlu vegna útkalls á Herðubreið á laugardag þar sem maður varð bráðkvaddur á fjallinu. Atvik hafi komið upp sem orsakaði misskilning varðandi aðkomu Gæslunnar.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir: „Landsstjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur farið yfir atburðarrásina og þykir í framhaldinu ljóst að þarna hafi mannleg mistök átt sér stað; farið var út fyrir faglega vinnuferla og misbrestur varð í samskiptum þeirra sem að komu.

Beiðni um aðstoð þyrlu LHG í aðgerðum björgunarsveita getur komið frá lögreglu, Neyðarlínu eða í samráði við bakvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þeir ferlar eru þrautreyndir og byggja á forræði aðila á yfirstjórn aðgerða og reynslu aðila af aðgerðum. Það er því á hæsta máta ófaglegt að leita beint til ráðherra dómsmála og blanda henni í aðgerð sem var í vinnslu.

Landhelgisgæsla Íslands og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa árum saman unnið að björgunarstörfum á landi og sjó. Á síðustu árum, með öflugri tækjakosti LHG,  hefur samstarf þetta eflst til muna. Nauðsynlegt er að björgunarsveitir og lands-og svæðisstjórnir séu í góðu samstarfi við LHG og noti þá ferla sem þegar hafa sem hafa verið búnir til í samstarfi þessara aðila. Það kemur í veg fyrir misskilning af þessu tagi og tryggir fagleg viðbrögð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert