Ríkisábyrgðin falli niður 2024 og fyrirvarar haldi
Fjárlaganefnd fundar undir forystu Guðbjarts Hannessonar, formanns nefndarinnar. Heiðar Kristjánsson
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Fulltrúar allra flokka í fjárlaganefnd, að Framsóknarflokknum undanskildum, freistuðu þess í gærkvöldi að tryggja að breytingatillögur við Icesave-frumvarpið, sem samþykktar voru af meirihluta Alþingis fyrir þriðju og síðustu umræðu á dögunum, myndu halda. Nefndinni tókst ekki að ljúka umfjöllun um málið í nótt og hefur fundur verið boðaður í dag.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var lögð á það áhersla að ríkisábyrgð á lánum tryggingasjóðs innstæðueigenda frá Bretum og Hollendingum, vegna Icesave-skulda, myndi falla niður árið 2024, óháð því hvort búið yrði að greiða þau til baka á þeim tíma eða ekki. Samkvæmt Icesave-samningnum sem þegar hefur verið undirritaður verður ekki byrjað að greiða lánin til baka fyrr en árið 2016, eða eftir sjö ár.
„InDefence-fyrirvarinn“
Þá var einnig unnið að útfærslu þess í gær hvernig tryggja mætti að ríkisábyrgðin tæki aðeins gildi ef Bretar og Hollendingar samþykktu fyrirvarana sem gerðir hafa verið við ríkisábyrgðina. Í umræðunum í nefndinni var þetta kallað „InDefence-fyrirvarinn“ í höfuðið á tillögum sem InDefence-hópurinn hefur sett fram um Icesave-málið.Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins lögðu fulltrúar stjórnarflokkanna, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, áherslu á það í gærkvöldi að ná sáttum við Sjálfstæðismenn til að tryggja eins breiða sátt um málið og mögulegt væri.
Fulltrúar í fjárlaganefnd hafa lagt á það áherslu að vera upplýstir um öll samskipti sem embættismenn í ráðuneytum eiga við Breta og Hollendinga vegna vinnu fjárlaganefndar.
Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, segir samskiptin við Breta og Hollendinga vera í faglegum og eðlilegum farvegi. Þeir hafi verið upplýstir um fyrirvara sem fjárlaganefnd hefur gert við frumvarpið. Hins vegar vilji þeir ekki tjá sig efnislega um málið, eða taka afstöðu til fyrirvaranna, fyrr en niðurstaða Alþingis í málinu verður ljós.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Enga ábyrgð íslensks almennings -
Jón Finnbogason Eins og köttur í kringum heitan graut. -
Ásthildur Cesil Þórðardóttir Icesave enn og einusinni enn einn ganginn.. -
Andri Geir Arinbjarnarson Tryggingarsjóður settur á kennitöluflakk 2024? -
Haraldur Haraldsson Ríkisábyrgðin falli niður 2024 /það er svo margt sem verður ... -
Ómar Geirsson Hættið þessum skollaleik. -
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Enn Icesave -
G. Valdimar Valdemarsson Endalaust undanhald -
Gísli Gíslason 11 ástæður fyrir þingmenn til að hafna Icesave ! -
Guðni Karl Harðarson Óskhyggja mín? -
Þórarinn Þ Gíslason RÁS 2 KL.07.30 ! MIKILVÆGAST ER AÐ PERSÓNUGERA ÁBYRGA AÐILA ... -
Eygló Þóra Harðardóttir Icesave fyrirvarar taka II... -
Jón Valur Jensson Icesave-sinnar að gefast upp eða undirbúa ný, kænskuleg svik við ...
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Fjárlaganefnd fundar síðdegis
- Þriðjudagur, 7. júlí 2009, Innlent Icesave úr fjárlaganefnd eftir helgi
- Föstudagur, 21. ágúst 2009, Innlent Óvíst hvenær umræðu lýkur
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Icesave afgreitt úr nefnd
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Óvíst um sjálfstæðisatkvæði
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































