Stálu ginflöskum

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var brotist inn í verslun Vínbúðarinnar í Skeifunni í nótt. Rúða var brotin og tveimur ginflöskum var stolið. Myndir náðust af tveimur mönnum í eftirlitskerfi verslunarinnar. Málið er í rannsókn. Þá stóðu lögreglumenn þjóf að verki við Háaleitisbraut snemma í morgun, enn hann var að reyna að stela bifreið. Hann gistir nú fangageymslur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert