Týr flutti pramma fyrir Ístak
Varðskipið Týr er nú á heimleið frá Noregi en þangað var lagt af stað 15. ágúst með prammana Mikael og Gretti. Nú er varðskipið á heimleið og er m.a. við eftirlitsstörf í Síldarsmugunni.
Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að ferðin hafi gengið vel.
Þar segir að Ístak ehf. hafi haft samband við Landhelgisgæsluna í maí til að athuga hvort Landhelgisgæslan gæti dregið dýpkunarpramma til Noregs vegna hugsanlegs verkefnis þar. Ístak hafi að skoða málið vegna útboðs á hafnarframkvæmdum í Stamsund á Lofoten í Noregi.
Þá segir að Gæslan hafi tekið vel í erindið. Það hafi þó verið tekið fram í upphafi af hálfu Landhelgisgæslunnar að það mundi aðeins taka að sér verkefnið ef enginn innlendur aðili gæti sinnt því.
„Í júlí varð síðan ljóst að Ístak hafði fengið þetta verkefni. Landhelgisgæslan sá margvísleg tækifæri í að sinna þessu verkefni.
Í fyrsta lagi nýttist ferðin frá Noregi til eftirlits í Síldarsmugunni en íslenskt varðskip hefur ekki komið þangað í um 5 ár. Með því að senda íslenskt varðskip í Síldarsmuguna minnir Landhelgigæslan á rétt Íslendinga á þessu hafsvæði og uppfyllir alþjóðlegar eftirlitsskyldur sínar sem aðili að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðinu (NEAFC).
Í öðru lagi fengust töluverðar tekjur fyrir þetta verkefni, tekjur sem koma Landhelgisgæslunni mjög vel í erfiðu árferði.
Í þriðja lagi gat Landhelgisgæslan með þessu móti aðstoðað íslenskt fyrirtæki í að afla sér verkefna erlendis en enginn annar íslenskur aðili gat dregið prammana. Síðan má bæta því við að varðskipið Týr sótti heim Sortland við Lofoten, flotastöð norsku strandgæslunnar, en mikið og gott samstarf hefur ætíð verið meðal þjóðanna,“ segir í tilkynningu Gæslunnar.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. febrúar 2009, Innlent Varðskipin á sjó að nýju
- Þriðjudagur, 27. júlí 2010, Innlent Eitt varðskip við Ísland
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Nýtt varðskip sjósett fljótlega
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Færeysk skip grunuð um ólöglegar veiðar
- Fimmtudagur, 29. apríl 2010, Innlent Skipstjórum hrýs hugur við úthafinu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































