Ársreikningar nýju bankanna birtir í september
Gert er ráð fyrir að ársreikningar nýju bankanna vegna ársins 2008 muni liggja fyrir í september. Í framhaldi af því má reikna með að opinber upplýsingagjöf bankanna muni færast í eðlilegt horf. Þetta kemur m.a fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins.
Þingmaðurinn spurði Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra um gengistryggðar og verðtryggðar eignir og skuldir bankanna. Ráðherra vísar í svari sínu til fyrra svars um mat á nýju bönkunum og eignasafni þeirra. Þar segir að réttur alþingismanna til þess að óska eftir upplýsingum með því að beina fyrirspurn til ráðherra takmarkist við opinber málefni.
Ráðherra segir að nýju bankarnir séu hlutafélög í eigu ríkisins sem teljist til einkaréttarlegra aðila og njóti lögbundinnar verndar um viðskiptalegar upplýsingar. Um ríkishlutafélög gildi almennt sömu reglur og um önnur hlutafélög og takmarkist réttur alþingismanna til að krefja ráðherra upplýsinga um slík félög við það hvort upplýsingarnar eigi að vera opinberar samkvæmt lögum. Opinberar upplýsingar um rekstur viðkomandi félaga séu m.a. birtar í ársskýrslum þeirra.
Þá segir í svarinu að fjármálaráðuneytið sé meðvitað um að upplýsingagjöf bankanna sé mikilvægur þáttur í heilbrigðu fjármálakerfi. Áhersla ráðuneytisins sé að tryggt verði sem allra mest gagnsæi í starfsemi þeirra og að bankarnir leggi sig fram um að veita greinargóðar upplýsingar um starfsemi sína.
Slíkar áherslur koma m.a. fram í eigendastefnu stjórnvalda sem tekur til starfsemi fjármálastofnana í ríkiseigu, en þar segir m.a. að fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins skuli ársfjórðungslega birta fjárhagsupplýsingar sínar opinberlega.
Efnahagsreikningar nýju bankanna hafa ekki enn verið birtir opinberlega en gert er ráð fyrir því að ársreikningur vegna ársins 2008 muni liggja fyrir í september. Fjármálaráðherra segir að í framhaldi af því megi reikna með að opinber upplýsingagjöf viðkomandi hlutafélaga muni færast í eðlilegt horf. Ekki sé því unnt að svara fyrirspurninni frekar en þetta efnislega að svo stöddu.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 19. apríl 2010, Innlent Vill nánari upplýsingar um eignarhald á bönkunum
- Þriðjudagur, 23. júní 2009, Innlent Josefsson setti engin skilyrði
- Miðvikudagur, 16. júní 2010, Innlent Hafa ekki fengið lögfræðiálit vegna bílalána
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent Ríkið í málarekstri gegn sjálfu sér?
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Stýra þarf skipinu af varfærni
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































