Mögulega á vanskilaskrá í fjögur ár
eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is
EKKI er útilokað að nafn einstaklings í greiðsluaðlögun verði á vanskilaskrá í allt að fjögur ár eins og tíðkast um nauðasamninga fyrirtækja. Þetta segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Lánstrausts.
„Í gegnum árin hefur vanskilaskráin birt nauðasamninga fyrirtækja. Núna eru nauðasamningar einstaklinga að verða til í fyrsta sinn. Okkar lögmenn eru að fara yfir þær heimildir og reglur sem gilda um hvað okkur ber að birta og hvað ekki í framhaldi af því. Það er verið að skoða hvort meðhöndla eigi nauðasamninga einstaklinga eins og nauðasamninga fyrirtækja,“ segir Rakel.
Þegar héraðsdómur hefur samþykkt greiðsluaðlögun fer í gang hefðbundið ferli, að því er Rakel greinir frá. „Allir sem fara í greiðsluaðlögun fara á vanskilaskrá um leið og auglýsing um hana hefur birst í Lögbirtingablaðinu. Auglýsingin er til þess að tryggja að kröfuhafar sendi inn kröfulýsingu á því sem viðkomandi skuldar þeim.“
Rakel segir starfsmenn Lánstrausts hafa orðið vara við að almenningur fái ekki nægar upplýsingar um hvaða úrræði séu í boði auk þess sem einstaklingar fái mjög misvísandi upplýsingar.
Rakel telur að kröfuhafar átti sig heldur ekki á ferlinu. „Staðfesting á nauðasamningum getur falið í sér að skuldir hjá sumum lánveitendum séu felldar niður en ekki öðrum. Ef við eigum að koma í veg fyrir að deilt verði um þessi mál í framtíðinni er það grundvallaratriði að allir geri sér grein fyrir því hvað úrræðið felur í sér.“
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. september 2009, Innlent Innkallanir vegna greiðsluaðlögunar ekki á vanskilaskrá
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Nafnbirting verði endurskoðuð
- Miðvikudagur, 10. júní 2009, Innlent Nærri 19 þúsund á vanskilaskrá
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Innlent Gagnrýna að fólk sé sett á vanskilaskrá
- Fimmtudagur, 15. janúar 2009, Innlent Lán keypt með afslætti
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































