Andvíg breytingu jarðalaga
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Landssamtök landeigenda gagnrýna að þau hafi verið sniðgengin þegar vinnuhópur um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga var skipaður. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Stjórn Landssamtaka landeigenda á Íslandi telur það ámælisvert að landbúnaðarráðherra skipi vinnuhóp um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga án aðildar samtakanna.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði í liðinni viku vinnuhóp um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga. Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en þar er tiltekið að ríkisstjórnin muni standa vörð um innlendan landbúnað og tryggja fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar.
Í nýskipuðum vinnuhópi eru Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, þingmenn VG. Frá Bændasamtökum Íslands eru í hópnum Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum, Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri og Erna Bjarnadóttir sviðsstjóri. Með vinnuhópnum munu starfa Sigurður Þráinsson skrifstofustjóri og Arnór Snæbjörnsson lögfræðingur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Enginn fulltrúi hagsmunsamtaka landeigenda var kallaður til starfans.
Landssamtök landeigenda segja að það hljóti að skapa tortryggni um markmið boðaðrar endurskoðunar laga að hagmunasamtök landeigenda séu þannig sniðgengin þegar skipaður er vinnuhópur vegna málsins og ekkert við þau talað um hvað vaki nákvæmlega fyrir stjórnvöldum.
Samtökin sjá enga ástæðu til að breyta gildandi jarða- og ábúðarlögum og vilja að viðskiptafrelsi ríki áfram á markaði fyrir bújarðir líkt og með fasteignir yfirleitt. Samtökin vara eindregið við að hömlur verði settar á viðskipti með bújarðir sem rýrt gætu verðgildi þeirra. Landeigendur segja að slíkt yrði afturhvarf til fortíðar.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Endurskoðun jarðalaga, breytir ekki núverandi landbúnaðarkerfi. -
Þorsteinn H. Gunnarsson Frumbýlingar og leiguliðar -
Torfi Kristján Stefánsson Landssamtök landeigenda??
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 29. ágúst 2009, Innlent Óttast að hömlur rýri verðgildi bújarða
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Segir frumvarpið ógna stöðugleikanum
- Mánudagur, 11. maí 2009, Innlent Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































