Samstaða mesti sigurinn

Alþingi stækka

Alþingi mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is

 „Mér finnst Alþingi hafa sýnt styrk sinn í þessu máli. Nefndarvinnan í fjárlaganefnd hefur gjörbreytt málinu og skapað betri sátt um það, svo ekki sé talað um mikilvægi fyrirvaranna sem settir eru við ríkisábyrgðina,“ segir Ragnar H. Hall hrl. um breytingartillögurnar sem fjárlaganefnd hefur samþykkt vegna frumvarps fjármálaráðherra um ríkisábyrgð Tryggingarsjóðs innstæðueigenda vegna Icesave-skulda Landsbankans.

Ragnar segir samstöðuna meðal allra flokka, nema Framsóknarflokks, hafa skipt miklu máli. „Mér finnst hún [samstaðan, innsk. blm.] vera mesti sigurinn.“

Frá því að samningurinn um ríkisábyrgð tryggingarsjóðsins var undirritaður, í júní á þessu ári, er mikið vatn runnið til sjávar. Breytingartillögur fjárlaganefndar hafa sett skýr skilyrði um með hvaða hætti íslenska ríkið getur tekið á sig ríkisábyrgðina. Óljóst er enn hversu mikið mun falla á Ísland, þar sem óvissa um virði eigna Landsbankans, sem ganga upp í þá skuld sem ríkið tekur á sig, er enn mikil. Í versta falli geta hundruð milljarða fallið á íslenska ríkið vegna ríkisábyrgðarinnar.

Helstu fyrirvararnir sem sátt náðist um meðal fulltrúa fjögurra flokka í fjárlaganefnd eru þeir að hagvöxtur stýri því hversu mikið er greitt af lánunum frá Hollendingum og Bretum. Þá var því bætt við, á milli 2. og 3. umræðu í nefndinni, að ríkisábyrgðin nái aðeins til ársins 2024.

Samkvæmt samningnum byrja endurgreiðslur á lánum eftir sjö ár, eða árið 2016, og því mun endurgreiðslutímabilið standa í átta ár. Samkvæmt breytingartillögunum er einnig gert ráð fyrir að ef enginn hagvöxtur verður á tilteknu tímabili verði ekki greitt af lánunum á þeim tíma. Þá er einnig tryggt að ríkisábyrgðin getur ekki tekið gildi nema Bretar og Hollendingar samþykki þá fyrirvara sem meirihluti fjárlaganefndar hefur samþykkt. Með því er tryggt að ríkisábyrgðin verði ekki of íþyngjandi fyrir íslenskan efnahag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
Coton De Tulear til sölu
Erum með yndislega Coton De Tulear til sölu. Uppl í síma 5668417 www.dalsmynni.i...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
Sparibaukurinn er til sölu - Peugeot 206 HDI árg.2006
Þessi bíll notar disel olíu, hann eyðir mjög litlu 4-5 lítrum á hundraðið. Hann ...
 
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...