N1 greiði umsamdar launahækkanir
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 fær væntanlega eftir helgi, formlega áskorun frá Verkalýðsfélagi Akraness þess efnis að N1 stnadi við kjarasamningana frá í febrúar 2008. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson
Verkalýðsfélag Akraness skorar á stjórnendur og eigendur N1 að greiða starfsfólki sínu þær hækkanir sem ella hefðu komið til ef ASÍ og SA hefðu ekki gengið frá frestun á áður umsömdum launahækkunum. Formaður VLFA segir þetta gert í ljósi frétta af ágætum hagnaði af rekstri N1 fyrri helming ársins.
Í gær sendi N1 afkomutilkynningu en þar kemur fram að hagnaður af rekstri N1 fyrstu sex mánuði ársins nam 474 milljónum króna. Á sama tímabili í fyrra var 98 milljóna króna hagnaður af rekstrinum. Í tilkynningu N1 segir ennfremur að kjarnastarfsemi félagsins hafi gengið vel á árinu og reiknað sé með að afkoma ársins verði betri en árið 2008.
„Þetta verða að teljast mjög jákvæð tíðindi,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA. Hann rifjar hins vegar upp að samninganefnd Alþýðusambands Íslands gekk í tvígang frá frestun við Samtök atvinnulífsins á þeim umsömdu launahækkunum sem kveðið var á um í kjarasamningi sem gerður var 17. febrúar 2008. Ástæðan sem gefin var fyrir því að fresta áður umsömdum launahækkunum til verkafólks var bág staða fyrirtækja í kjölfar bankahrunsins, þau hefðu ekki bolmagn til að standa við þær launahækkanir sem um hefði verið samið.
„Nú kemur í ljós að N1 er að skila um 500 milljónum í hagnað á fyrstu 6 mánuðum þessa árs og reikna forsvarsmenn N1 með að afkoman verði betri á þessu ári en í fyrra. Til hvers á fyrirtæki sem er að skila slíkum hagnaði að fá afslátt á hóflega gerðum kjarasamningi frá 17. febrúar 2008? Það er engin ástæða til slíks,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.
Vilhjálmur segir að fjárhaglegt tjón bensínafgreiðslumanns vegna frestunar kjarasamninga og þess sem hann kallar linkind í forystu ASÍ muni nema um eitt hundrað þúsund krónum.
„Og munar um minna fyrir verkafólk sem starfar á berstrípuðum lágmarkstöxtum. Stjórn Verkalýðsfélag Akraness hefur lýst því yfir að félagið er tilbúið til að sýna fyrirtækjum sem eru í fjárhagslegum vandræðum skilning og umburðalyndi og þá sérstaklega fyrirtækjum í byggingariðnaði og honum tengdum. En það er hins vegar alls engin ástæða til að fresta áður umsömdum launahækkunum hjá fyrirtækjum sem selja sínar afurðir erlendis og njóta góðs af þeim gengisbreytingum sem orðið hafa. Einnig olíufyrirtækjunum sem varpa öllum sínum vanda beint útí verðlagið sem síðan hefur áhrif á verðtryggðu lánin okkar“ segir formaður VLFA.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness mun að líkindum senda forsvarsmönnum N1 formlega áskorun eftir helgi en stjórnin þingar á þriðjudag.





































