Útkall vegna hangikjöts

Tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi við Kóngsbakka í Reykjavík um kl. tvö í nótt. Íbúi í húsinu varð áhyggjufullur þegar hann fann mikla reykjalykt á gangi hússins og hafði samband við slökkvilið. Þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði kom í ljós að enginn reyndist eldurinn, heldur var verið að sjóða hangikjöt í potti í einni íbúðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert