Stjórninni ekki sætt verði fyrirvörum hafnað
„Verði fyrirvörunum við ríkisábyrgð á Icesave-samning ríkisstjórnarinnar hafnað, verði ekki fallist á skilaboðin frá Alþingi, er ég jafnframt þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin eigi að segja af sér. Hún hefur þá endanlega sannað sig að vera óhæfa til að gæta að hagsmunum þjóðarinnar,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á opnum fundi í Valhöll í morgun.
Bjarni sagði að sjálfstæðismenn hefðu tekið ákvörðun um að starfa með nýjum meirihluta í Icesave-málinu. Hann hafi samanstaðið af stjórnarandstöðu og nokkrum úr andspyrnuhreyfingunni í Vinstri grænum. Ekki hafi komið til greina að veita ríkisábyrgð á Icesave-samning ríkisstjórnarinnar.
Afstaðan hafi kallað fram efasemdir hjá nokkrum sjálfstæðismönnum en hefðbundin leikur í stjórnarandstöðu að vera á móti hefði leitt til klofnings á þingi sem aðeins hefði varað í takmarkaðan tíma.
Andspyrnuhreyfingin og aðrir stjórnarliðar hefðu náð saman að lokum og það hefði leitt til miklu verri niðurstöðu á frumvarpi ríkisstjórnarinnar.
„Ég tel því að við höfum valið ábyrgu leiðina í málinu. Þá leið sem var til mestra heilla fyrir íslenska þjóð og ég mun alltaf velja þá leið. Sama hvernig stendur á,“ sagði Bjarni og uppskar mikið klapp fyrir.
Formaðurinn sagði að ef Hollendingar og Bretar höfnuðu fyrirvörunum og höfnuðu því að verða við kröfum Alþingis um sanngjarnt tillit til aðstæðna á Íslandi væri málið í uppnámi. Þá ættum við að lýsa því yfir að Íslendingar ættu ekki að sæta þvingunarskilmálum heldur fara fram á hlutlausa dómsmálameðferð.
„Við höfum ítrekað sagt að Íslendingar ætla að standa við skuldbindingar sínar,“ sagði Bjarni og bætti við: „Verði fyrirvörunum hafnað, verði ekki fallist á skilaboðin frá Alþingi, er ég jafnframt þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin eigi að segja af sér. Hún hefur þá endanlega sannað sig að vera óhæfa til að gæta hagsmunum þjóðarinnar, sett samskipti okkar við aðrar þjóðir í fullkomið uppnám með því að lofa samningum sem hún gat ekki staðið við, auk þess að fara gegn vilja þingsins og gegn vilja þjóðarinnar. Slík ríkisstjórn verður einfaldlega að víkja.“
Bloggað um fréttina
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Ekki glæpamafíuna aftur til valda, takk. -
Auðun Gíslason Glætan! Vill aðeins slá skjaldborg um auðvaldið! -
Axel Jóhann Hallgrímsson Já, Bjarni er ekki rétt að... -
Finnur Bárðarson Leiðsögumaðurinn -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Bjarni hættu nú!! -
Haraldur Rafn Ingvason Nú er það ekki svo að mér sé illa við ... -
Þorsteinn H. Gunnarsson Víkja fyrir Bretum? -
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Ég finn til með Bjarna Ben. -
Jón Halldór Guðmundsson Hvað varðar BB um þjóðarhag? -
Jón Ingi Cæsarsson Talar tungum tveim. -
Stefán Friðrik Stefánsson Völdin að veði í Icesave-málinu -
Þórkatla Snæbjörnsdóttir Derrick og Lögregluhundurinn Rex. Já er það ekki bara? -
Axel Jóhann Axelsson Stjórnin verður varla langlíf -
Þórarinn Þ Gíslason STÓRFURÐULEG FRAMKOMA BJARNA BEN. Í GÆR Á ALÞINGI, ER AÐ ... -
Jóhannes Ragnarsson Samansafn höfuðveikra skammarkvikinda eða glæpasamtök? -
Magnús Helgi Björgvinsson Bíddu Bjarni er það ekki frekar þú sem átt að ... -
Heiða B. Heiðars Bjarni alveg með þetta á hreinu! -
Jón Valur Jensson Voru bara já-já-mennirnir mættir á fund í Valhöll hjá Icesave-foringja? -
Björn Leví Gunnarsson Rétt og rangt -
Þórdís Bára Hannesdóttir Bjarni Ben þarf ekki að segja af sér. -
Ólafur Ragnarsson "til hægri" -
Haraldur Haraldsson Víki verði fyrirvörum hafnaði/ þetta er þegar að koma i ... -
Guðmundur Andri Skúlason Við, almenningur erum afl og við bíðum ekki lengur -
Guðrún María Óskarsdóttir. ER það ábyrg afstaða að tjá sig ekki, á hvaða ... -
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Róttækur Þjóðlegur frelsisflokkur eina svarið ! -
Jenný Anna Baldursdóttir Hrunaflokkurinn berst um á hæl og hnakka
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 9. janúar 2010, Innlent Bjarni: Eigum aðra kosti
- Fimmtudagur, 20. ágúst 2009, Innlent Búið að kollvarpa málinu
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Farið verði fram á skýringar AGS
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Aðeins Alþingi breytir fyrirvörum
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Engin viðbrögð enn vegna Icesave-fyrirvara
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































