Hells Angels til Íslands?

Íslenski bifhjólaklúbburinn Fáfnir hefur nú fengið stöðu væntanlegra aðildarsamtaka alþjóðlegu bifhjóla og glæpasamtakanna Hells Angels samkvæmt því sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Þá kom fram í fréttinni að ríkislögreglustjóri ætli að kalla saman baráttuhóp lögreglunnar gegn Hells Angels eftir helgina. Hann segi ástæðu til að óttast samtökin sem m.a. hafi átt aðild að átökum glæpagengja á Norðurlöndum. Þá tengist þau fíkniefnasölu, mansali og annarri glæpastarfsemi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert