Vaxandi samfélagsógn

Tímabundið landamæraeftirlit var tekið upp vegna veisluhalda vélahjólaklúbbsins Fáfnis. Talið var að sérstök ógn stafaði ... stækka

Tímabundið landamæraeftirlit var tekið upp vegna veisluhalda vélahjólaklúbbsins Fáfnis. Talið var að sérstök ógn stafaði af sumum boðsgestum, en meðal þeirra voru norrænir Vítisenglar. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Ríkislögreglustjóri segir starfsemi skipulagðra glæpasamtaka vaxandi samfélagsógn og telur að huga beri að lagabreytingum sem auðvelda lögreglu að bregðast við slíku. Sérstakur hópur ríkislögreglustjóra sem stýrt hefur baráttu yfirvalda gegn skipulagðri glæpastarfsemi fjallaði í morgun um tilraunir Hells Angels til að ná hér fótfestu. Skýrt var frá því í byrjun þessa árs að vélhjólaklúbburinn Fáfnir hefði öðlast viðurkenningu sem stuðningsaðili Vítisengla hér á landi.

Fréttir af viðurkenningu Vítisengla á Fáfni sem stuðningsklúbbi eru því ekki nýjar af nálinni og koma ekki á óvart. Ríkislögreglustjóri segir í tilkynningu að upplýsingarnar hafi þegar komið fram skýrslum ríkislögreglustjóra þar sem mat er lagt á skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Í opinni útgáfu af skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem birt var í febrúarmánuði segir m.a.:

„Íslenski vélhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland (Fáfnir) hefur hlotið viðurkenningu sem „stuðningsklúbbur“ Hells Angels hér á landi. Þar með hefur hópur manna á Íslandi stofnað til formlegra tengsla við alþjóðleg glæpasamtök. Fyrir liggur að félagar í Fafner MC-Iceland stefna að fullri aðild að Hells Angels-samtökunum.“

Þá segir að alls staðar þar sem Hells Angels hafi náð að skjóta rótum hafi aukin skipulögð glæpastarfsemi fylgt í kjölfarið. Spenna ríki í heimi skipulagðra glæpahópa vélhjólamanna á Norðurlöndum. Nýir hópar láta nú til sín taka og þar sé oft um að ræða svonefnda „stuðningsklúbba“ við þekkt glæpasamtök á borð við Hells Angels.

Ríkislögreglustjórar Norðurlandanna mótuðu þá skýru stefnu fyrir allnokkrum árum að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi mótorhjólagengja. Embætti ríkislögreglustjóra á Norðurlöndum vinna í sameiningu að þessu markmiði sem mörgum öðrum.“

Þá segir ríkislögreglustjóri að staðfest sé að vélhjólklúbburinn Fáfnir muni að öllu óbreyttu geta sótt um fulla aðild að Hells Angels samtökunum á seinni hluta næsta árs.

Langtímamarkmið Fáfnismanna

Ríkislögreglustjóri segir að tilraunir Hells Angels til að ná fótfestu á Íslandi megi rekja ein sjö ár aftur í tímann, hið minnsta. Viðbrögð lögreglu og tollgæslu hafi jafnan verið á sama veg. Ítrekað hafi komið til þess að hópar erlendra liðsmanna Hells Angels hafi verið stöðvaðir við komu til landsins og þeim meinuð landganga. Yfirleitt hafi verið gripið til slíkra ráðstafana eftir að borist hafi upplýsingar um að í ráði séu veisluhöld á vegum Fafner MC-Iceland með þátttöku erlendra félaga í Hells Angels.

Þetta gerðist síðast í marsmánuði á þessu ári er ákveðið var að taka upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í samræmi við 2. mgr. 2. gr. Schengen-samningsins eftir að aflað hafði verið upplýsinga um að fjölmargir erlendir félagar í Hells Angels hygðust sækja íslenska félaga sína heim.

Ríkislögreglustjóri segir að færa megi rök fyrir því að hörð viðbrögð lögreglu á síðustu árum við heimsóknum félaga í Hells Angels hingað til lands hafi reynst fallin til að tefja fyrir fullri aðild Fafner MC-Iceland að samtökunum. Við framkvæmd þessarar stefnu hafi góð samvinna við frændþjóðir á Norðurlöndum reynst sérlega mikilvæg.

Stýrihópur starfandi um árabil

Um árabil hefur verið starfræktur sérstakur stýrihópur sem stýrt hefur baráttu yfirvalda gegn skipulagðri glæpastarfsemi vélhjólagengja. Þetta gerir hópurinn m.a. með því að samhæfa krafta lögreglu og annarra yfirvalda. Stýrihópur ríkislögreglustjóra kom saman til fundar í dag og var þar farið yfir fyrirliggjandi upplýsingar um umsvif Hells Angels hér á landi. Ríkislögreglustjóri segir að lögregla og tollgæsla á Norðurlöndum hafi aukið samstarf sitt, m.a. varðandi skipulagða glæpastarfsemi en sameiginlegur fundur þessara aðila var haldinn á Íslandi í september í fyrra.

Vaxandi samfélagsógn

Ríkislögreglustjóri segir að í Danmörku og þá sérstaklega í Kaupmannahöfn hafi skálmöld ríkt á síðustu misserum vegna harðvítugra átaka innflytjendagengja og félaga í Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra. Í þeim átökum hefur skotvopnum m.a. verið beitt og hafa félagar í stuðningsklúbbum Hells Angels mjög látið til sín taka.
Í Noregi hefur félögum í samtökum vélhjólamanna sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi fjölgað mjög á undanliðnum árum. Sömu þróun má greina víðar í nágrannalöndum Íslendinga.

Þróunin á Íslandi hefur um margt líkst þeirri sem greina hefur mátt á Norðurlöndum á síðustu árum og vikið er að í opinni útgáfu skýrslu greiningardeildar frá því fyrr í ár.

„Á það ekki síst við um markvissa viðleitni til að koma upp kerfi stuðningsklúbba hér á landi. Á Norðurlöndum líta stjórnvöld á skipulögð glæpasamtök vélhjólamanna á borð við Hells Angels sem vaxandi samfélagsógn. Í Danmörku hafa stjórnvöld vakið máls á þeim möguleika að bann verði lagt við starfsemi vélhjólagengja á borð við Hells Angels. Í maímánuði í ár lýsti þáverandi dómsmálaráðherra Danmerkur yfir því að hann teldi slíkt bann vel koma til álita,“ segir í tilkynningu ríkislögreglustjóra.

Ríkislögreglustjóri segir að þróunin á Íslandi sem og í nágrannaríkjunum kalli á að aukinn þungi verði lagður í baráttu gegn þessari birtingarmynd skipulagðrar glæpastarfsemi.

„Mikilvægt er að samræmd viðbrögð hér á landi njóti víðtæks stuðnings í samfélaginu. Jafnframt liggur fyrir að nauðsynlegt er að tiltæk úrræði verði tekin til endurskoðunar. Í því efni telur ríkislögreglustjóri að huga beri að lagabreytingum til að auðvelda lögreglu að bregðast við þessari samfélagsógn,“ segir ríkislögreglustjóri.

Vefur RLS

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
TEXASBORGARAR
Heimagerðir hamborgarar og franskar úr 100% gæðahráe...
palomino yearling 2004 til sölu
palomino yearling 2004 til sölu skoðað 2013 mjög vel með farið er með for...
Hyundai Trajet 2002
Hyundai Trajet 2002. Ekinn 174þ. Heillegur bíll. Nýleg tímareim, nýtt í bremsum,...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....