Viðurkenndi sprengjugabb

Lögregla með aðra töskuna, sem fannst við 10-11 í gærkvöldi.
Lögregla með aðra töskuna, sem fannst við 10-11 í gærkvöldi. mbl.is/Jakob

Fimmtán ára piltur hefur viðurkennt að hafa hringt í starfsfólk verslunarinnar 10-11 við Langarima í Grafarvogi á ellefta tímanum í gærkvöld og sagt því að sprengja væri fyrir utan verslunina.

Töluverður fjöldi unglinga var við verslunina á þessum tíma. Þegar lögregla kom á vettvang voru þar tvær töskur og var önnur þeirra merkt „sprengja“.

Voru foreldrar piltsins sem var handtekinn látnir sækja hann, að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert