Nýtt starfsleyfi fyrir Járnblendiverksmiðjuna

stækka

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Umhverfisstofnun hefur gefið út nýtt starfsleyfi fyrir Elkem Ísland ehf. sem rekur Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Nýja starfsleyfið nær yfir hugsanlegar breytingar á starfsemi fyrirtækisins, eins og framleiðslu á sólarkísli. Starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 1. september 2025.

Elkem er með nýju starfsleyfi heimilt að framleiða allt að 190 þúsund tonn af 45 - 100% kísil og kísiljárni og allt að 45 þúsund tonn af kísilryki í ljósbogaofnum. Hluti af framleiðslunni fer í eftirvinnslu. Með eftirvinnslu er átt við framleiðslu á kímefnum með íblöndun magnesíum og fleiri málma, hreinsun á kísiljárni og hreinsun á kísil til að mæta ströngustu kröfum um hreinleika. Einnig er heimil förgun á eigin úrgangi, rekstur verkstæða, varaaflvéla og annarrar þjónustu fyrir eigin starfsemi.

Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að starfsleyfinu á tímabilinu 29. maí til 23. júlí 2009 og bárust fjórar athugasemdir. Umhverfisstofnun segir innsendar athugasemdir hafa verið mjög ítarlegar og vel unnar. Nokkrar breytingar voru gerðar á áður auglýstri tillögu. Þannig verður Hvalfjarðarsveit nú boðið á árlegan samráðsfund rekstraraðila með Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og Umhverfisstofnun en sveitarfélagið lét í ljós áhuga á frekari aðkomu að umhverfismálum hjá Elkem. Auk þess verður opinn kynningarfundur árlega en í tillögunni var gert ráð fyrir þeim annað hvert ár.

Í nýju starfsleyfi Elkem má nú finna skýringarákvæði um valdsvið og þvingunarúrræði Umhverfisstofnunar. Ákvæði um orkunýtingu inniheldur nú frekari skýringu á kröfum. Þá var ákvæði hert um geymslu fljótandi efna. Fallist var á rýmkun losunarmarka fyrir ársmeðaltal brennisteinsdíoxíðs þannig að þau verði óbreytt frá fyrra starfsleyfi. Í því sambandi taldi Umhverfisstofnun að athuguðu máli að Elkem hefði lítið svigrúm til úrbóta.

Vefur Umhverfisstofnunar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
Ó.e.Lágmark 4h Íbúðarhúsnæði í 201 Kóp.
Óska eftir að leigja lágmark 4 herb, einbýli, rað, par, fjölbýli allt kemur til ...
Gönguskór
Fóðraðir gönguskór til sölu nr. 49-50 Upplýsingar í síma 8935005...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
 
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...