Samningar OR og Magma birtir

Frá stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur í gær.
Frá stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur í gær.

Samningar, sem stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í gær við Hafnarfjarðarbæ og Magma Energy,   eru nú aðgengilegir á vef Orkuveitunnar.

Fram kemur á heimasíðu Orkuveitunnar að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hafi leitað heimildar Magma Energy fyrir birtingu samnings OR við fyrirtækið og hafi hún fengist.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, tilkynnti um birtinguna við upphaf fundar í borgarstjórn Reykjavíkur í dag, þar sem samningarnir verða til umræðu.

Samningarnir við Magma og Hafnarfjarðarbæ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert