Óttasleginn flóttamaður enn í felum
Eftir Jón Pétur Jónsson - jonpetur@mbl.is„Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég er mjög hræddur,“ segir Írakinn Ali Nayef í samtali við mbl.is, en hann er flóttamaður í felum í Danmörku. Tuttugu og tveir samlandar hans, sem neitað hafði verið um hæli í landinu, voru sóttir í Sandholmlejren flóttamannabúðirnar í nótt og sendir úr landi snemma í morgun.
Farið var með fólkið á flugvöllinn í Hróarskeldu þaðan var flogið með það til Íraks. Um er að ræða 21 karlmann og eina konu. „Þetta eru allt vinir mínir,“ segir hann.
„Ég óttast mjög að missa soninn minn og allt saman,“ segir Ali, en hann á fjögurra ára gamlan son sem býr á Íslandi með móður sinni sem er íslensk.
Aðspurður segist hann vilja koma til Íslands, en hann segir að staðan sé erfið og óvissan algjör. Hann hafi ekki sótt um hæli hér á landi.
Það vakti mikla athygli í síðasta mánuði þegar danska lögreglan gerði áhlaup á Brorsonskirkjunni í Kaupmannahöfn aðfararnótt 13. ágúst og handtók flóttamenn sem höfðust þar við. Ali Nayef var á meðal þeirra sem dvöldu í kirkjunni, en honum tókst að flýja og hefur verið í felum í Kaupmannahöfn síðan. Hann kom til Danmerkur árið 2003.
Ali segir að lögreglan leiti nú að sér því hann eigi yfir höfði sér að verða sendur aftur til Íraks, sem hann hræðist mjög. En hann missti bæði föður sinn og bróður í kjölfar innrásarinnar Bandaríkjahers í Írak árið 2003.
Hann þorir því ekki að láta sjá sig úti á götu. Hann segist njóta aðstoðar velviljaðra einstaklinga sem útvegi sér mat og sígarettur. Nú haldi hann sig innandyra og fylgist með fréttum. Líf hans er í biðstöðu um þessar mundir.
Innlent »
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Innlent Gafst upp á lífi flóttamanns
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Innlent Vill til Íslands
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina




































