Íslendingar fá ekki flýtimeðferð í ESB
Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ítrekaði í dag þegar hann ávarpaði utanríkismálanefnd Evrópuþingsins, að aðildarumsókn Íslands fengi enga flýtimeðferð og Íslendingar geti ekki stytt sér leið inn í sambandið.
Rehn tók fram, að Ísland væri Evrópuríki með sterka lýðræðishefð og tengdist Evrópusambandinu þegar sterkum böndum með aðildinni að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen.
„Þetta svarar til um að bil 2/3 af regluverki Evrópusambandsins. Hins vegar fær Ísland enga flýtimeðferð og getur ekki stytt sér leið til ESB-aðildar. Landið þarf að uppfylla sömu skilyrði og önnur umsóknarríki byggð á meginreglunni um „eigin verðleika." Framkvæmdastjórnin mun mynda sér ýtarlega og hlutlausa skoðun byggða á sömu aðferðafræði og beitt verður gagnvart öðrum ríkjum," sagði Rehn.
Í ræðunni fór hann yfir stöðu mála hjá öðrum ríkjum, sem hafa sótt um aðild að ESB. Hann sagði, að ef Króatar uppfylla sett skilyrði í tíma og landamæradeila þeirra og Slóvena leysist innan skamms kynni að vera hægt að ljúka aðildarviðræðum við þá á fyrri hluta næsta árs.
Rehn sagðist einnig vonast til að viðræður hefjist við Tyrki að nýju en það sé háð umbótum á löggjöf Tyrkja.
Þá geti framkvæmdastjórn ESB hugsanlega lagt til síðar á þessu ári, að aðildarviðræður hefjist við Makedóníu ef landið uppfyllir sett skilyrði. Góðar fréttir berist frá Svartfjallalandi og hugsanlega geti framkvæmdastjórnin myndað sér skoðun um umsókn Svartfellinga á næstu mánuðum. Einnig hefðu nýlegar kosningar í Albaníu tekist betur en fyrri kosningar þótt þær hefðu ekki verið gallalausar.
Bloggað um fréttina
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Ættum við að fá sérmeðferð? -
Jón Valur Jensson Óeðlileg íhlutun í innanlandsmál: fulltrúi OECD litlu skárri en Olli ... -
Ómar Geirsson Misjöfn eru laun heimsins. -
Guðbergur Egill Eyjólfsson Loksins góðar fréttir -
Ægir Óskar Hallgrímsson Gott!! -
Rafn Gíslason Engar sér lausnir. -
Vésteinn Valgarðsson Vessgú... -
Jón Snæbjörnsson Flýtimeðferð
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Ísland gæti keppt um að verða 28. ríki ESB
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Icesave ótengt inngöngu í ESB
- Mánudagur, 7. september 2009, Innlent Rehn hittir þrjá ráðherra
- Miðvikudagur, 13. maí 2009, Innlent Hver veit nema ESB-umsókn frá Íslandi örvi Norðmenn
- Mánudagur, 14. september 2009, Innlent Vill flýta aðildarviðræðum við Ísland
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































