Fresta afgreiðslu

Ráðhús Reykjavíkur. stækka

Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Sverrir

Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að fresta um viku, afgreiðslu á sölu á þriðjungshlut í HS Orku til Magma Energy. Þett avar gert að ósk fulltrúa minnihluta í borgarráði. Rúv greindi frá.


Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á mánudag tilboð Magma Energy þriðjungshlut sinn í HS Orku. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna greiddi atkvæði gegn sölunni.

Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur, Akraneskaupstaður, Borgarnesbyggð og Reykjavíkurborg þurfa að samþykkja söluna, bæði bæjar- og borgarráð og bæjarstjórnir og borgarstjórn.

Borgarráð ræddi söluna á fundi sínum í morgun. Minnihlutinn bar fram 32 spurningar um söluna, ýmis ákvæði og forsendur samningsins við Magma. Minnihlutinn spurði m.a. um arðgreiðslur og vörslu þeirra, stöðu Hitaveitu Suðurnesja og veð í bréfum HS, núvirði samningsins við Magma Energy og hvers vegna hagkvæmt væri að selja Magma hlutinn í HS Orku.

Minnihlutinn fór fram á frestun afgreiðslu málsins og var orðið við því.

Fyrirspurnir minnihlutans um sölu á hlut OR í HS orku
Framlagning samningsins og trúnaðarákvæði

1. Hvers vegna var samningurinn ekki sendur stjórnarmönnum OR mun fyrr? Tilboðið hlýtur að hafa legið fyrir þegar tilboð Magma átti að renna út. Stjórnarmenn hefðu þá haft 10 daga til að kynna sér tilboðið en ekki eina klukkustund.
2. Ef tilboðið lá ekki fyrir eða hafði ekki verið þýtt yfir á íslensku eins og borgarstjóri bar við í umræðum í borgarstjórn. Hvaða gögn hafði þá meirihlutinn hugsað sér að leggja fyrir stjórn OR fyrir 10 dögum ef ríkistjórnin hefði ekki óskað eftir fresti?
3. Óskað er skýringa á því af hvers frumkvæði svohljóðandi ákvæði var sett inn í samninginn: “aðilar eru sammála að gera sitt besta til að halda tilveru og innihaldi þessa samnings í ströngum trúnaði“ og í hvaða tilgangi ákvæðið er fram sett?
4. Hvernig réttlætir meirihlutinn að samningur með slíku ákvæði sé lagður fram og samþykktur í fyrirtæki í almannaeigu?
5. Hvers vegna felldi meirihlutinn tillögu um að víkja þessu ákvæði til hliðar og hvernig samræmist sú ákvörðun, ákvörðun borgarstjóra um að birta samningin daginn eftir?
6. Kallar birting samningsins á endurskoðun samningstextans, sbr. gr. 10.1

Bann við opinberum málflutningi, yfirlýsingum og fréttatilkynningum án samþykkis Magma

7. Hvernig túlkar meirihlutinn 11. grein samningsins um bann við þátttöku í opinberri umræðu, bann við yfirlýsingum og fréttatilkynningum án fyrirfram samþykkis Magma?
8. Hvernig hefur meirihlutinn efnt þetta samningsákvæði?
9. Bindur samningurinn alla kjörna fulltrúa, að mati meirihlutans, eða einungis borgarstjóra og fulltrúa meirihlutans? Hvernig fellur þetta ákvæði að skyldum borgarstjóra og kjörinna fulltrúa gagnvart almenningi og kjósendum?

Vextir og ábyrgðir á 7 ára kúluláni (skuldabréfi)

10. Óskað er samanburðar á greiðslukjörum á fyrirliggjandi samningum við Magma annars vegar og Hafnarfjarðarbæ hins vegar.
11. Hvernig er rökstutt að 1,5% vextir í bandaríkjadölum séu ásættanlegir?
12. Miðað við meðalverðbólgu í Bandaríkjunum sl. 10 ár er ljóst að þetta þýðir neikvæða raunvexti, hversu neikvæðir eru raunvextirnir miðað við vænta verðbólgu í Bandaríkjunum?
13. Ljóst er að gríðarlegt gengistap mun verða af skuldabréfinu þegar gengi íslensku krónunnar hækkar. Hversu mikið verður tapið miðað við 25, 50, 75 eða 100% styrkingu krónunnar?
14. Var óskað eftir móðurfélagsábyrgð Magma á skuldabréfinu? Ef svo, hversvegna var hún ekki veitt. Ef ekki, hversvegna ekki?
15. Ekki verður sagt að 1,5% vaxtagreiðslur Magma séu mjög íþyngjandi. Þrátt fyrir það hefur Magma Sweden valkost hvenær sem er að fresta einhverri einni, tveimur eða þremur, en ekki fleiri en þremur, vaxtagreiðslum. Magma Sweden getur nýtt sér þann valkost með því að greiða ekki slíka vaxtagreiðslu þegar hún er á gjalddaga.  Ef Magma Sweden nýtir sér valkostinn mun hverri frestaðri vaxtagreiðslu verða bætt við Höfuðstólsupphæðina og vextir munu safnast upp á hana samkvæmt vaxtaprósentunni. Hvers vegna er þetta ákvæði inn í samningnum og gæti Magma Sweden valið að greiða ekki vexti fyrr en á fjórða ári samningsins?
16. Samkvæmt samningnum fæst ekki betur séð en að standi Magma ekki við skuldbindingar eða fari í vanskil skuli þeir greiða vanskilavexti sem eru aðeins 5% á ári. Óskað er eftir samanburði á vanskila vöxtum sem OR greiðir Hafnafjarðarbæ í samningi þeirra um hlut í HS orku. Jafnframt er óskað eftir skýringum á því hvernig 5% vanskila prósenta getur talist eðlileg?
17. Hvaða trygging er fyrir því að samkvæmt þessum kjörum sé það ekki hagur Magma að fara í vanskil, sbr. “Ef Vanefndir verða, eins og lýst er að ofan, og hvenær sem er þar á eftir ef slíkt atvik er áframhaldandi, getur handhafinn með tilkynningu til Magma Sweden gjaldfellt alla skuld sem er útistandandi á þessu veðtryggða skuldabréfi og lýsa það allt gjaldfallið og greiðanlegt án tafar  ásamt uppsöfnuðum vöxtum á því og öllum öðrum upphæðum sem eru greiðanlegar samkvæmt því. Við slík atvik skal Magma Sweden greiða raunskilavexti á slíka upphæð eða upphæð sem er hraðað frá gjalddaganum þar til handhafinn móttekur greiðslu. Vanskilavaxtaprósentan skal vera 5% á ári.”

Arðgreiðslur og varsla þeirra

18. Samkvæmt 2. grein vörslusamnings getur kaupandi greitt sér arð. Hvenær getur kaupandi greitt út arð og háð hvaða skilyrðum?
19. Verða arðgreiðslur notaðar til að greiða inn á skuldabréfið?
20. Vörsluaðili geymir hlutabréfin og arðgreiðslur, og sér til þess að arður sé greiddur út til kaupandans ef ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Í 4.6 kemur fram að: "Seljandinn viðurkennir og samþykkir að vörsluaðilinn er ráðgjafi kaupandans." Hér virðist um augljósa hagsmunaárekstra að ræða ef vörsluaðilinn er ráðgjafi kaupandans á sama tíma og hann á að vera vörsluaðili um tryggingu seljandans. Hvernig réttlæta menn þetta fyrirkomulag? Óskað er eftir rökstuðningi með tilliti til þess að vörsluaðili virðist sjálfur mjög vel varin fyrir skaðabótaskyldu samkvæmt vörslusamningi?
21.Er það réttur skilningur að Magma geti greitt út arð gefið að tryggingin sé 1,3 sinnum lánið?
22. Er það réttur skilningur að sé tryggingin lægri en lánið þá hafi Magma 12+3 mánuði til að leiðrétta það en þarf aðeins að bæta trygginguna um 1,1 af andvirði lánsins?
23. Hvað ef eitthvað kemur þá í veg fyrir að Magma greiði sér arð á þeim 15 mánuðum sem fyrirtækið hefur til að “leiðrétta tryggingar”?
24. Að því gefnu að ofangreindar tryggingar séu veittar, hvaða tryggingar eru í samningnum fyrir því að ekki verði um stórfeldar arðgreiðslur út úr HS að ræða á næstu árum?

Staða Hitaveitu Suðurnesja og veð í bréfum HS

25. Samkvæmt samningnum skulu útistandandi atriði í sambandi við lánaaðstöðu Félagsins hafa verið leyst að formi og efnislega þannig að með sanngirni megi teljast vera fullnægjandi fyrir Kaupandann.  Kaupandinn er meðvitaður um að slík lausn kann að fela í sér sanngjarna hækkun á vaxtamuninum á lánaaðstöðunni og veðsetningu ákveðinna eigna Félagsins sem veð fyrir lánaaðstöðuna, að því tilskildu að slík lausn hafi ekki veruleg áhrif á matsverð hlutabréfa Félagsins. Af þessu tilefni er spurt um hver sé staðan gagnvart kröfuhöfum HS?
26. Er það réttur skilningur að falli verðgildi HS orku og veð í bréfunum fari undir vefþekju þá dugi að setja fleiri bréf í HS orku sem veð?
27. Er það réttur skilningur að tryggingin sé metin af matsmanni Magma. Ef svo, væri ekki eðlilegra að matsmaður seljandans væri fengin til verksins frekar en matsmaður ráðin af kaupanda sem hefur hagsmuni af því að fegra stöðuna, sjá: Ef hlutfall Verðmætis veðsettra hlutabréfa í tilteknu Verðmati og Höfuðstólsupphæðar Veðsetta skuldabréfsins á Matsdegi sem er notuð fyrir slíkt Verðmat („Hlutfall umfangs“) er minna en 1.0 á móti 1.0, þá skal Magma Sweden sjá til þess að innan 3. (þriggja) mánaða frá fyrsta ársafmæli slíks Matsdags sé það að minnsta kosti 1.10 á móti 1.00 og innan 3. (þriggja) mánaða frá öðru ársafmæli slíks Matsdags, sé Hlutfall umfangs reiknað á slíkum Matsdegi að minnsta kosti 1.30 á móti 1.0.  Ef Hlutfall umfangs er jafnt eða hærra en 1.30 á móti 1.00 á einhverjum Matsdegi skal Magma Sweden ekki hafa frekari skuldbindingar samkvæmt þessu ákvæði nema Hlutfall umfangs falli niður fyrir 0.9 á móti 1.0 á seinni Matsdegi.  Til að standa við skuldbindingu sína samkvæmt þessu ákvæði getur Magma Sweden hvenær sem er sett að veði fleiri hlutabréf í HS Orka hf. eða aðra tryggingu sem er ásættanleg fyrir Handhafa sem breytir af sanngirni, og mun slík trygging þá verða hluti af Veðsetningunni (skv. skilgreiningu að neðan).  Verðmæti allra hlutabréfa í HS Orka hf. sem þannig eru veðsett verður miðað við sama verðmæti hvers hlutabréfs í HS Orka hf. og sýnt er í nýjasta Verðmati, og verðmæti  allra annarra trygginga sem þannig eru veðsettar skal verða ákveðið með samkomulagi milli Magma Sweden og Handhafans sem breytir af sanngirni.

Núvirði samningsins

28. Á fundi stjórnar OR var lögð fram úttekt KPMG á reiknilíkani fjármálsviðs OR. Til þessa álits hefur verið vísað í fjölmilum og því er spurt og óskað eftir svörum KPMG, endurskoðenda OR: í minnisblaði vegna yfirferðar á reiknilíkani segir “Almennt tíðkast við mat á skuldabréfum að núvirða sjóðstrymi þess með ávöxtunarkröfu sem tekur að fullu tillit til mótaðila áhættu og sérstakar skilmála sem lánasamningur kann að innihalda (s.s tryggingar).” Er það mat KPMG að eðlilegt tillit hafi verið tekið til áhættuálags skuldara í útreikningum OR?
29. Er það mat KPMG að grunnvextir séu eðlilegur og fullnægjandi ávöxtunarkrafa til að núvirða með? (eins og um kaup á ríkisskuldabréfum frá bandaríska ríkinu sé að ræða)?  
30. Tryggingin sem liggur fyrir greiðslu skuldabréfsins eru bréf í HS orku, fyrirtæki sem samkvæmt fréttum uppfyllir ekki lánaskilmála í dag. Hvernig metur KPMG þið markaðsávöxtunarkröfu á skuldabréf þar sem tryggingin er hlutabréf í HS Orku gefið að síðustu viðskipti voru á genginu 4,7 (á milli Magma og Geysir Green) sem er 75% af því gengi sem verið er að verðmeta bréfin á sem tryggingu?

Réttarstaða gagnvart Hafnarfjarðarbæ

31. Óskað er eftir áliti borgarlögmanns á því hvaða áhrif framganga OR í þessu sölu og samningsferli hefur haft á réttarstöðu fyrirtækisins gagnvart Hafnarfjarðarbæ, verði ákveðið að falla frá þessum umdeildu viðskiptum?

Eignaraðilar og hluthafar HS

32. Óskað er eftir yfirliti yfir það hverjir standa að baki þeirra eignarhaldsfélaga sem eiga GGE og Magma.

HS Orka

HS Orka mbl.is/Ómar Óskarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Keppnin fer fram í Hörpu.

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »
Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

„Stærstu verðlaunin eru heima“

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
14:30 „Það hjálpaðist allt að á þessum degi. Það var röð tilviljana sem olli því að við vorum öll heima,“ segir Gísli Örn Gíslason, sem í dag var valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 af Rauða krossi Íslands. Hann bjargaði lífi 18 ára gamallar dóttur sinnar í fyrra. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Fleiri vilja aukið íbúalýðræði

14:31 Áhugi á auknum tengslum kjósenda við fulltrúa sína hefur aukist mikið á sveitarstjórnarstiginu á umliðnum árum, og raunar einnig upp á það síðasta á landsmálastiginu. Í niðurstöðum könnunar sem unnin var fyrir innanríkisráðuneytið kemur fram að áhuginn sé heldur að aukast með stjórnmálamanna heldur en hitt. Meira »

Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
13:48 Fulltrúar sveitarstjórna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, afþökkuðu boð til fundar í forsætisráðuneytinu sem halda átti 9. febrúar síðastliðinn. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vinnustaðaskírteini - plastkort
Vinnustaðaskírteini, afsláttarkort, félagsskírteini, gjafakort, hótellykla, nafn...
dæla og mótor
Til sölu dæla með allt að 2" stútum ásamt 12v mótor 1/2 hö. Tengi á milli vanta...
Skrifborð+rúm+hilla til sölu
Barna-/unglingarúm m. dýnu ásamt hillu og skrifborði til sölu. Hægt er að nýta r...
Síritar - Hiti og raki - Íshúsið ehf
Úrval af síritum sem geta bæði skráð bæði hita- og rakastig. Einnig fjölbreytt ...
 
Aðalfundur sjálfstæðisfélögin í hafnarfirði

Sjálfstæðisfélögin íHafnarfirði og ful...
Húsnæði óskast

Húsnæði óskast til kaups eða leigu Rót...
Félagsráðgjafi
Sérfræðistörf
Félagsráðgjafi F...
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922098 [Kk...