Fréttaskýring: Lagabreytingar í fyrra rótin að deilum

HS Orka. Kaup Magma Energy á hlutafé í HS Orku hafa ekki verið til lykta ... stækka

HS Orka. Kaup Magma Energy á hlutafé í HS Orku hafa ekki verið til lykta leidd enn. Borgarráð og borgarstjórn eiga eftir aðs amþykkja ákvörðun OR. mbl.is/Ómar Óskarsson

Morgunblaðið Eftir Magnús Halldórsson - magnush@mbl.is

Deilan um sölu á eignarhlutum í HS orku til kanadíska fyrirtækisins Magma Energy er ekki síst hatrömm vegna þess að bakland stjórnarflokkanna tveggja hefur bókstaflega logað vegna málsins, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ríkisstjórnin ræddi málin ítarlega á vikulegum fundi sínum á þriðjudag, samkvæmt heimildum, og kom þar í ljós augljós meiningarmunur milli flokkanna.

Ef fram heldur sem horfir mun Magma verða eigandi milli 40 og 50 prósent hlutafjár í HS orku á móti Geysi Green Energy, sem nú er undir stjórn lánardrottna fyrrverandi eigenda félagsins, Íslandsbanka, Landsbankans og lífeyrissjóða.

Ágreining innan ríkisstjórnarflokkanna má rekja aftur til sumarmánaða síðasta árs, þegar lögum um auðlinda- og orkumál var breytt. Með þeim var rýmkað fyrir því að einkaaðilar gætu komið að orkuframleiðslu, en jafnframt tryggt að auðlindirnar sjálfar, sem virkjaðar eru, yrðu alltaf í opinberri eigu. Þá var hlutverk dreififyrirtækjanna skýrt og það lögfest að þau verði í opinberri meirihlutaeign.

Viðurkennir meiningarmun

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra dregur ekki dul á að það sé meiningarmunur í þessum málum innan stjórnmálaflokkanna. Hann hafi í raun komið best fram á Alþingi þegar lögin voru samþykkt í fyrra. „Ég lít svo á að Össur [Skarphéðinsson], sem þá var iðnaðarráðherra, hafi verið að reyna að koma í gegn málamiðlun vegna andstæðra sjónarmiða sem þá voru í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Við í Vinstri grænum vorum alfarið á móti öllum breytingum í þá veru, að einkaaðilar gætu eignast orkufyrirtækin.“ Innan Samfylkingarinnar hefur afstaðan verið önnur og opnari. Össur skrifaði á bloggsíðu sína, daginn eftir að lögin voru samþykkt 30. maí í fyrra: „Þrjú meginatriði var að finna í frumvarpinu, sem nú er orðið að lögum frá Alþingi. Í fyrsta lagi að orkuauðlindir í eigu ríkis, sveitarfélaga eða fyrirtækja í þeirra eign, mega ekki láta orkuauðlindirnar varanlega frá sér en geta leigt þær á jafnræðisgrundvelli. Í öðru lagi að skilið verður á milli annars vegar framleiðslu og sölu á orku og hins vegar dreifingu á orku, þ.e.a.s. heitu vatni og rafmagni. Í þriðja lagi, að dreififyrirtækin, sem búa við náttúrulega einokun, verða nú lögum samkvæmt að vera í félagslegri meirihlutaeign.

Í reynd þýðir þetta að enginn getur eignast orkuauðlindir fólksins, og að enginn getur okrað í skjóli einokunar á brýnum nauðþurftum einsog ljósi og hita.“

Vinstri græn litu svo á, og gera enn eins og Ögmundur bendir á, að lögin geti leitt til þess að orkuauðlindirnar verði ekki nýttar í þágu almannahagsmuna heldur frekar í arðsemisrekstri einkafyrirtækja, innlendra sem erlendra. Allt bendir hins vegar til þess að HS orka verði fyrsta stóra orkuframleiðslufyrirtækið hér á landi sem verður að meirihluta í eigu einkaaðila.

Umdeild atriði

Einstök atriði samnings um kaup Magma Energy á hlutum OR og Hafnarfjarðarbæjar í HS orku hafa verið uppspretta deilna. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa gagnrýnt samninginn og sagt efnisatriði hans „með ólíkindum“. Einkum eru það ákvæði um hvernig Magma greiðir fyrir hlut OR í HS orku. Staðgreitt er með 3,6 milljörðum króna og síðan greitt með 8,4 milljarða króna skuldabréfi til sjö ára. Lánað er í dollurum á 1,5 prósenta vöxtum. OR greiðir Hafnarfjarðarbæ fyrir þeirra hlut, tæplega 15 prósent, með láni sem ber hærri vexti, eða 4,5 prósent. Helmingurinn af verðinu er staðgreiddur. Forsvarsmenn OR hafa sagt að verðið sem Magma greiðir, sem í heild er tæplega 12 milljarðar, sé viðunandi. Kjörin séu jafnframt eðlileg.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Garmin Nuvi 1490T GPS tæki til sölu
Raddleiðsögn 5,0'' snertiskjár, umferðamóttakari, akgreinavísir, bluetooth, hand...
Hobby 560 kmfe kojuhús til sölu árg 2007
Til Sölu Hobby 560 kmfe Exclusive,, útvarp sjónvarp dvd ,sólarsella, boiler ,álf...
Frí auglýsing NÝR BÍLASÖLUVEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...