Ætla ekki að leggja mansalsmálaflokkinn á ís
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segist binda vonir við að Ísland geti fullgilt Palermóbókunina og samning Evrópuráðsins í byrjun næsta árs og að nauðsynlegar lagabreytingar til þess verði samþykktar á haustþinginu.
Að mati Rögnu var bæði eðlilegt og tímabært að flytja ábyrgðina á mansalsmálum frá félagsmálaráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins, en sá flutningur fer formlega fram 1. október nk. „Ég lít þannig á að baráttan gegn mansali sé hluti af baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Mikið af þeim aðgerðum sem eru gegn mansali heyrir beinlínis undir dóms- og kirkjumálaráðuneytið og með flutningnum getum við einbeitt okkur betur að þessum málaflokki. Við höfum metnað til þess að berjast gegn mansali, tökum við þessum málaflokki full baráttuþreks í dómsmálaráðuneytinu og ætlum ekkert að leggja neitt á ís í þeim efnum,“ segir Ragna.
Spurð hvenær sérfræðiteymið verði skipað og geti tekið til starfa segir Ragna ekki eftir neinu að bíða í þeim efnum. „Ég mun byrja að vinna í þessu strax. Þetta er hvort sem er á leiðinni til okkar og því ekki eftir neinu að bíða,“ segir Ragna og tekur fram að sú hálfs árs bið sem orðið hafi á því að skipa teymið frá því aðgerðaáætlunin var kynnt megi fyrst og fremst skýra af þjóðfélagsaðstæðum. „Tíminn hefur farið í önnur verkefni. Enda ekki hægt að gera allt í einu. En auðvitað mega heldur ekki mikilvæg mál gleymast.“
Innt eftir viðbrögðum við mati sérfræðinga þess efnis að brýnna sé við núverandi þjóðfélagsaðstæður en áður að berjast gegn mansali segist Ragna deila þeirri skoðun.
„Ég er sammála því að það eigi að leggja áherslu á þennan málaflokk og stemma stigu við mansali og vændi. Nú er búið að gera kaup á vændi refsivert og eitt af viðfangsefnunum framundan er að framfylgja því,“ segir Ragna og tekur fram að það verði enn ein áskorunin fyrir lögregluna.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Aðgerðaáætlun gegn mansali að fara af stað
- Fimmtudagur, 25. mars 2010, Innlent Fullgilding rétt handan við hornið
- Miðvikudagur, 22. september 2010, Innlent Hættumerkin fyrir hendi
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent Setji sérstakan ríkissaksóknara
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Innlent „Leyniþjónusta“ enn upp á yfirborðið
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































