Íslenska ríkið gæti eignast helming í Byr
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Endurskipulagning Byrs sparisjóðs er á lokastigi en allir helstu erlendir kröfuhafar sparisjóðsins, alls nítján að tölu, hafa skrifað undir bindandi samkomulag sem felur m.a. í sér niðurfellingu verulegs hluta krafna þeirra á hendur sparisjóðnum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Stærstu kröfuhafarnir eru þýsku bankarnir HSH Nordbank og Bayerische Landesbank og austurríski bankinn RZB. Kröfuhöfunum bauðst að gerast stofnfjáreigendur í sparisjóðnum en völdu frekar að fá hluta krafna sinna greiddan strax.
Sparisjóðurinn sótti um 10,6 milljarða króna stofnfjárframlag frá ríkissjóði sem bíður afgreiðslu hjá fjármálaráðuneytinu. Ef ráðuneytið afgreiðir umsókn sjóðsins gæti það skilað sér í því að ríkissjóður eignaðist allt að helmingshlut í sparisjóðnum, samkvæmt heimildum blaðsins. Verði það niðurstaðan munu stofnfjárhlutir annarra eigenda þynnast út hlutfallslega í samræmi við það. Heildarfjárhæð niðurfellingar erlendra kröfuhafa hefur ekki fengist upp gefin, en því meira af kröfum sem þeir gefa eftir því meira hækkar eigið fé sparisjóðsins. Því er ekki útilokað að verðmætarýrnun núverandi stofnfjáreigenda verði takmörkuð.
Ákvörðun Steingríms
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að vinna vegna umsóknar sparisjóðsins vegna stofnfjárframlags sé langt á veg komin. Hann segir að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi verið upplýstir um málefni Byrs.„Þeir [fulltrúar AGS] eru ekki ákvörðunaraðili um það hvort samþykki [verður veitt] eða ekki. Það ræðst af því hvort sparisjóðurinn uppfyllir skilyrðin. Það er ekki þannig að þeir hafi síðasta orðið. Það má segja að það sé ég sem endanlega ræð því í þeim skilningi,“ segir hann. Einn liður í samkomulagi við AGS er endurreisn fjármálafyrirtækja. „Óháð samstarfinu við AGS er þetta eitthvað sem við ætluðum að gera. Það er ekki þannig að einhver einstök skref í þessu séu skilyrði fyrir endurskoðun sjóðsins,“ segir Steingrímur.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Sósíalisti vill þjóðnýta Byr, en til hvers? -
Gísli Foster Hjartarson Engin trú? -
Jón Sævar Jónsson Styrkur til stofnfjáreigenda
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 6. febrúar 2010, Innlent Ríkið vill eignast Byr
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Hvor sjóður fær 900 milljónir
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Innlent Fjölmenni á íbúafundi
- Föstudagur, 27. febrúar 2009, Innlent Stofnfé Sparisjóðs Vestmannaeyja aukið
- Föstudagur, 3. apríl 2009, Innlent SPKEF tapaði 17 milljörðum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































